Undur og stórmerki er stutt fjölskylduævintýri sem má leika í garði, skógrækt eða öðru grænu svæði. Finnið þrjár uppgötvanir, veljið stórmerki og vekið skógarkortið ykkar til lífsins.
Hvað ef bærinn er að bíða eftir því að þið gefið honum líf og lit?
Farið saman í Garðalund, á Akratorg, að vitanum, í Skarfavör og á Langasand. Lesið sögurnar, hlustið og leitið. Uppgötvanir ykkar verða að myndum og smám saman lifnar kortið við.
Eftir kaup fáið þið tölvupóst með tengli á leikinn og leiðbeiningum. Geymið póstinn svo þið getið opnað leikinn aftur.
Er ókeypis leikurinn opinn öllum?
Já. Undur og stórmerki er opinn og ókeypis, án kaupa eða innskráningar.
Les einhver sögurnar fyrir okkur?
Í leiknum Akranes - bærinn í bókinni les fullorðinn sögurnar og fjölskyldan tekur þátt saman. Tónlist fylgir lestrinum og þagnar í útileitinni, svo hljóð umhverfisins fái að njóta sín.
Þurfum við að fara á alla staðina í einu?
Þið ráðið ferðinni. Hægt er að taka eitt ævintýri í einu og gefa hverjum stað þann tíma sem þið viljið.