HeimVeraTILRAUN UM LÍFIÐ

UM HeimVera

Tilraun um lífið

HeimVera er skapandi hugmyndavettvangur um tengsl okkar við okkur sjálf, hvert annað og samfélag lífsins.

Um HeimVeru — hljóðheimur

Verkefnið tengir heimspeki, sjálfbærni, náttúru, inngildingu og hönnun við spurningar sem mæta okkur í daglegu lífi. Hverju tökum við eftir? Hvað teljum við verðmætt? Hvaða möguleika sjáum við? Hvernig hugsum við um lífið og sjálf okkur?

Frá undrun til athafna

Sögur um lífið geta vakið undrun. Tónlist getur gefið tilfinningum rödd. Hugleiðingar, hugmyndir og lifandi orðabók bjóða okkur að endurskoða forsendur sem við vissum kannski ekki að væru til staðar í hugsun okkar. Tilraunirnar færa spurningarnar inn í hversdaginn, þar sem við getum prófað að hugsa öðruvísi og tekið eftir því sem gerist.

Heimilið er hluti af heiminum

Heimilið hefur sérstakan stað í verkefninu. Þar verða tengsl umhverfis, venja, vellíðanar og þátttöku áþreifanleg. Hlutirnir sem við notum, aðgengið að rýminu og aðstæðurnar sem það skapar — fyrir samveru, sköpun og hvíld til dæmis — geta stutt okkur eða hamlað. Heimilið tengist líka stærri kerfum framleiðslu, neyslu og náttúruauðlinda.

Umhyggja fyrir samfélagi lífsins

Af sjónarhóli HeimVera snýst sjálfbærni um að næra forsendur lífsins: vistkerfin sem við reiðum okkur á, mannlegan margbreytileika, félagsleg tengsl, umhyggju og sameiginlega ábyrgð.

HeimVera býður upp á hugmyndir til að prófa og spurningar til að spyrja. Þú ræður hvað þú tekur með þér, hverju þú hafnar og hvað þú vilt skoða nánar.

Um höfundinn — Undrunin kom fyrst →
Skoða allt efni