← HeimVera

HeimVera · Sáttmáli Jarðar

HeimVera og
Sáttmáli Jarðar

Hvernig verða stórar hugmyndir hluti af hversdagslífinu?

Jörðin umvafin bleikum blómum og grænum laufum á bleikum grunni.

Söngur lífsins — hljóðheimur kaflans

Söngur lífsins

HeimVera er samstarfsaðili Sáttmála Jarðar (Earth Charter Affiliate) og sáttmálinn er ein af hugmyndafræðilegum stoðum verkefnisins.

Sáttmáli Jarðar sprettur af einfaldri en róttækri hugsun: Við deilum þessari jörð. Líf okkar er samofið lífi annarra og öllu sem lifir. Þess vegna berum við ábyrgð hvert á öðru, jörðinni og samfélagi lífsins.

Sáttmálinn tengir saman viðfangsefni sem við eigum stundum til að ræða hvert í sínu lagi: náttúruvernd, mannréttindi, félagslegt og efnahagslegt réttlæti, lýðræði og frið.

Hann fjallar því ekki aðeins um það sem við gerum heldur líka um gildin sem liggja ákvörðunum okkar og lífsháttum til grundvallar.

Hvers konar heim viljum við skapa saman?


Hvað er Sáttmáli Jarðar?

Sáttmáli Jarðar er alþjóðlegur siðferðilegur sáttmáli um sjálfbærni, ábyrgð og umhyggju fyrir lífinu.

Hann varð til í víðtæku alþjóðlegu samtali fólks úr ólíkum heimshlutum, menningarheimum og samfélögum og var formlega kynntur árið 2000.

Ein af grunnhugsunum sáttmálans er að við mannfólkið stöndum ekki utan við náttúruna. Við erum hluti af henni — hluti af stærra samfélagi lífsins.

Líf okkar er háð jarðvegi, vatni og lofti, plöntum og dýrum og ótal lífverum og náttúrulegum ferlum sem við leiðum sjaldnast hugann að.

Við erum hluti af flóknu neti lífs.

Í þeirri staðreynd felst ábyrgð.

En líka undrun.

Fjórar meginstoðir

Sáttmáli Jarðar hefur að geyma sextán meginreglur sem falla undir fjórar meginstoðir.

I. Virðing og umhyggja fyrir samfélagi lífsins

Að virða jörðina og lífið í allri sinni fjölbreytni.

Að viðurkenna að lífið hefur gildi í sjálfu sér, ekki aðeins vegna þess gagns sem við manneskjur getum haft af því.

Að sýna samfélagi lífsins umhyggju og varðveita fegurð og fjölbreytni jarðar fyrir komandi kynslóðir.

II. Vistfræðileg heild

Að vernda og endurheimta vistkerfi jarðar og standa vörð um fjölbreytni lífsins.

Að leitast við að koma í veg fyrir skaða áður en hann verður og haga framleiðslu, neyslu og lífsháttum þannig að þeir virði vistfræðileg mörk jarðar.

III. Félagslegt og efnahagslegt réttlæti

Að standa vörð um mannlega reisn, vinna gegn fátækt og óréttlæti og skapa samfélög þar sem öll eiga raunverulegt tækifæri til þátttöku og lífsgæða.

Sjálfbærni snýst því ekki aðeins um hvernig við göngum um náttúruna.

Hún snýst líka um hvernig við komum fram hvert við annað og okkur sjálf.

IV. Lýðræði, lausn frá ofbeldi og friður

Að byggja samfélög á þátttöku, gagnsæi, ábyrgð og virðingu fyrir mannréttindum.

Að menntun efli þekkingu, gildi og hæfni sem gerir okkur kleift að taka þátt í að skapa sjálfbærari heim.

Og að rækta menningu umburðarlyndis, lausn frá ofbeldi og friðar.

Lesa Sáttmála Jarðar og allar sextán meginreglurnar

Sáttmáli Jarðar

Formáli

Við stöndum á tímamótum í jarðarsögunni. Sá tími er runninn upp að mannkynið þarf að velja sér framtíð. Á sama tíma og veröldin verður sífellt samtengdari og brothættari felur framtíðin í sér bæði stórar hættur og mikla möguleika. Á leið okkar til framtíðar þurfum við að viðurkenna að þrátt fyrir stórkostlega menningarlega og líffræðilega fjölbreytni er mannkynið samt ein fjölskylda og Jörðin eitt samfélag með sameiginleg örlög. Við þurfum að taka höndum saman að mynda sjálfbært samfélag á heimsvísu sem byggir á virðingu fyrir náttúrunni, mannréttindum, réttlátri skiptingu lífsgæða og friðarmenningu. Í þessu samhengi er brýnt að við, íbúar þessarar plánetu, lýsum yfir ábyrgð okkar gagnvart hvort öðru, gagnvart lífríkinu og gagnvart komandi kynslóðum.

Jörðin, heimili okkar

Mannkynið er hluti af risavöxnum alheimi sem er í stöðugri þróun. Jörðin, heimili okkar, er pláneta með einstakt lífríki. Kraftar náttúrunnar gera lífsbaráttuna að krefjandi og ófyrirsjáanlegu ævintýri en Jörðin hefur séð um að skapa þær aðstæður sem eru forsenda þróunar lífs. Þanþol lífríkisins og velferð mannkyns byggir á heilbrigðu lífhvolfi sem er samansett úr vistkerfum þar sem er að finna fjölbreytilegar plöntur og dýr, gróðursælan jarðveg, hreint vatn og ferskt loft. Takmarkaðar auðlindir heimsins er málefni sem varðar allar manneskjur. Verndun lífs, fjölbreytni og fegurðar Jarðar er heilagt verkefni.

Ástand heimsins

Ráðandi hegðun í framleiðslu og neyslu veldur eyðileggingu umhverfis, eyðingu auðlinda og stórfelldri fækkun tegunda. Grafið er undan samfélögum. Ávinningur þróunar deilist ekki jafnt og bilið milli ríkra og fátækra breikkar. Óréttlæti, fátækt, fáfræði og ofbeldisfull átök er víða að finna og veldur miklum þjáningum. Hröð mannfjölgun, sem á sér engin fordæmi, veldur of miklu álagi á vistkerfi og samfélög. Grundvelli öryggis á heimsvísu er ógnað. Þetta er hættuleg þróun en hún er ekki óumflýjanleg.

Áskoranir framundan

Valið er okkar: að mynda alheimsbandalag til að huga að Jörðinni og hvert öðru eða taka þá áhættu að eyða sjálfum okkur og fjölbreytni lífsins. Grundvallarbreytinga er þörf í lífsgildum, stofnunum og lífsstíl. Við verðum að átta okkur á því að þegar grunnþörfum hefur verið mætt snýst mannlegur þroski fyrst og fremst um að vera meira en ekki um að eignast meira. Við höfum þekkingu og tækni til að sjá fyrir öllum og minnka álagið á umhverfið. Myndun alþjóðlegs borgaralegs samfélags skapar ný tækifæri til að byggja upp lýðræðislegan og mannvænan heim. Þær áskoranir sem við horfumst í augu við á sviði umhverfismála, hagfræði, stjórnmála, félagsmála og andlegra mála eru allar tengdar innbyrðis og saman getum við rutt brautina að heildrænum lausnum.

Sameiginleg ábyrgð

Til að standa undir þessum væntingum þurfum við að ákveða að lifa lífi okkar með vitund um sameiginlega ábyrgð okkar og samsama okkur sjálf með alþjóðasamfélaginu sem og okkar nánasta samfélagi. Við erum í senn borgarar ólíkra þjóða og eins heims þar sem hið staðbundna og alþjóðlega er tengt. Allir bera ábyrgð á velferð mannkyns í nútíð og framtíð sem og lífríkisins í heild. Við styrkjum samstöðu manna og tengsl þeirra við allt sem lifir ef við berum lotningu fyrir dulúð tilverunnar, erum þakklát þeirri gjöf sem lífið er, og auðmjúk gagnvart stöðu mannsins í náttúrunni.

Við þurfum nauðsynlega á sameiginlegri sýn að halda sem byggir siðferðislegan grunn að því heimssamfélagi sem nú er að myndast. Þess vegna styðjum við í sameiningu eftirfarandi grunngildi, sem öll tengjast innbyrðis, sem leið í átt að sjálfbærum lífsstíl. Allir einstaklingar, samtök, fyrirtæki, ríkisstjórnir og fjölþjóðlegar stofnanir ættu að líta til þessara grunngilda eftir leiðsögn og til að meta afrakstur sinn.

Grunngildi

I. Virðing og umhyggja fyrir öllum lífsformum

1.Virðum Jörðina og líf í öllum sínum fjölbreytileika.

a.Skiljum að allar verur eru tengdar og öll lífsform eru einhvers virði óháð því hversu mikilvæg þau eru mönnum.

b.Staðfestum trú okkar á því að mannleg reisn sé öllum manneskjum eiginleg og trú okkar á möguleikum mannkyns hvað varðar greind, listfengi, siðferði og andlegan kraft.

2.Berum umhyggju fyrir öllum lífsformum og leggjum áherslu á skilning, samúð og kærleika.

a.Viðurkennum að samfara réttinum að eiga, stjórna og nýta náttúruauðlindir er skyldan að koma í veg fyrir umhverfisskaða og vernda réttindi fólks.

b.Staðfestum að auknu frelsi, þekkingu og valdi fylgir aukin ábyrgð að halda á lofti sameiginlegum hagsmunum.

3.Byggjum upp lýðræðisleg samfélög sem einkennast af jafnrétti, þátttöku, sjálfbærni og friði.

a.Ábyrgjumst að samfélög tryggi mannréttindi og grundvallarfrelsi á öllum stigum og sjái öllum fyrir tækifæri til að nýta hæfileika sína til fulls.

b.Hvetjum til félagslegs- og efnahagslegs réttlætis, sem geri öllum kleift að finna sér öruggt og ánægjulegt lífsviðurværi sem tekur mið af þolmörkum náttúrunnar.

4.Verndum ofgnótt og fegurð Jarðar fyrir núlifandi og komandi kynslóðir.

a.Skiljum að frelsi hverrar kynslóðar til að framkvæma er takmarkað af þörfum kynslóða framtíðar.

b.Miðlum til komandi kynslóða lífsgildum, hefðum og stofnunum sem styðja mannleg samfélög og vistkerfi Jarðar svo þau megi blómstra til lengri tíma litið.

Til að fylgja eftir þessum fjóru víðtæku skuldbindingum er nauðsynlegt að:

II. Heilleiki vistkerfa

5.Vernda og endurbyggja heilleika vistkerfa Jarðar, með sérstakri athygli á líffræðilega fjölbreytni og þau náttúrulegu ferli sem eru undirstaða lífs.

a.Taka upp á öllum stigum áætlanir og reglur um sjálfbæra þróun sem samþætta endurheimt og verndun umhverfis við allar áætlanir um þróun.

b.Koma á fót svæðum sem eru vænleg sem verndarsvæði og gæta þeirra, til að vernda vistkerfi Jarðar sem eru undirstaða lífs, viðhalda líffræðilegri fjölbreytni og varðveita hinn náttúrulega arf. Þetta geta m.a. verið svæði þar sem er að finna villt dýralíf, bæði sjó og landi.

c.Hvetja til endurheimtar á tegundum og vistkerfum í útrýmingarhættu.

d.Hafa stjórn á og útrýma framandi og erfðabreyttum tegundum sem skaða innlendar tegundir og umhverfið; og koma í veg fyrir að slíkum skaðlegum lífverum sé sleppt út í vistkerfi.

e.Stýra notkun endurnýjanlegra auðlinda eins og vatns, jarðvegs, skógarafurða og lífríkis sjávar með þeim hætti að nýting sé ekki meiri en svo að auðlindirnar nái að endurnýja sig og heilbrigði vistkerfa sé tryggt.

f.Stýra námuvinnslu og notkun á óendurnýjanlegum auðlindum, eins og steinefnum og jarðefnaeldsneyti, með þeim hætti að rýrnun verði sem minnst og enginn alvarlegur umhverfisskaði hljótist af.

6.Koma í veg fyrir skaða sem er besta umhverfisverndin og, þegar þekking er takmörkuð, beita varúðarnálgun.

a.Grípa til aðgerða til að forðast möguleikann á alvarlegum eða óafturkræfum umhverfisskaða, jafnvel þegar vísindaleg þekking er takmörkuð eða án skýrrar niðurstöðu.

b.Setja sönnunarbyrðina á þá sem halda því fram að sú framkvæmd sem lögð er til valdi ekki umtalsverðum skaða og gera þá aðila sem standa fyrir framkvæmdum ábyrga fyrir umhverfisskaða.

c.Tryggja að í ákvarðanatöku um mannlegar athafnir sé tekið tillit til áhrifa sem eru uppsöfnuð, óbein, hnattræn og ná yfir langan tíma og langar vegalengdir.

d.Koma í veg fyrir mengun einhvers hluta umhverfis og leyfa enga uppbyggingu á geilsavirkum efnum, eiturefnum eða öðrum spilliefnum.

e.Forðast hernaðarlegar aðgerðir sem skaða umhverfið.

7.Aðlaga framleiðsluferli, neyslumynstur og endurvinnsluferli þannig að þau styðji við hæfni Jarðar til endurnýjunar, mannréttindi og samfélagslega velferð.

a.Draga úr notkun, endurnota og endurvinna þau efni sem notuð er við framleiðslu og til neyslu og tryggja að sá úrgangur sem eftir verður geti samlagast vistkerfunum.

b.Takmarka orkunotkun, bæta orkunýtni og nota í síauknum mæli endurnýjanlega orkugjafa eins og sólarorku og vindorku.

c.Hvetja til þess að umhverfisvæn tækni sé þróuð, tekin í notkun og miðlað á réttlátan hátt.

d.Fella umhverfis- og samfélagskostnað að fullu inn í verð á vörum og þjónustu og gera neytendum kleift að finna þær vörur sem uppfylla ströngustu umhverfis- og siðgæðistaðla.

e.Tryggja almennan aðgang að heilsugæslu sem hlúir að frjósemi og hvetur til ábyrgra barneigna.

f.Taka upp lífstíl sem beinir sjónum að lífsgæðum og efnislegri nægjusemi í heimi þar sem auðlindir eru takmarkaðar.

8.Efla rannsóknir sem tengja vistfræði og sjálfbærni og hvetja til opinnar miðlunar og notkunar þeirrar þekkingar sem þannig fæst.

a.Styðja við alþjóðlega vísindalega og tæknilega samvinnu um sjálfbærni, með sérstakri áherslu á þarfir þróunarríkja.

b.Viðurkenna og varðveita alþýðlega þekkingu og andlega visku í öllum menningarheimum, sem geta eflt umhverfisvernd og velferð mannkyns.

c.Tryggja að upplýsingar sem geta skipt sköpum fyrir heilsu fólks eða verndun umhverfis, þar með taldar erfðaupplýsingar, séu aðgengilegar hjá opinberum aðilum.

III. Félagslegt og efnahagslegt réttlæti

9.Útrýma fátækt sem er brýnt verkefni frá sjónarhóli siðfræði, samfélagslegra gilda og umhverfisverndar.

a.Tryggja réttinn til drykkjarvatns, hreins lofts, fæðuöryggis, ómengaðs jarðvegs, húsnæðis og öruggrar hreinlætisaðstöðu með því að útdeila innlendum og alþjóðlegum auðlindum eftir þörfum.

b.Gera hverri manneskju kleift að afla sér menntunar og úrræða sem tryggja öruggt lífsviðurværi og skapa félagslegt öryggi og traust samfélagsnet fyrir þá sem eru ófærir að sjá fyrir sér sjálfir.

c.Gangast við þeim sem hefur verið litið fram hjá, vernda þá sem eru veikir fyrir, þjónusta þá sem þjást og gera þeim mögulegt að þróa hæfni sína og fylgja eftir draumum sínum.

10.Tryggja að efnahagskerfið á öllum stigum hvetji til mannlegs þroska á grundvelli jafnréttis og sjálfbærni.

a.Hvetja til jafnrar dreifingar auðs innan ríkja og milli ríkja.

b.Styrkja og styðja við hugvit, tækniþekkingu, samfélagsþekkingu og fjármálastjórn í þróunarríkjum og leysa þau undan þungbærum erlendum skuldum.

c.Tryggja að öll viðskipti styðji við sjálfbæra notkun auðlinda, umhverfisvernd og framsækna vinnulöggjöf.

d.Krefja fjölþjóðleg fyrirtæki og alþjóðlegar fjármálastofnanir um gagnsæi í starfsemi sinni, til hagsbóta fyrir almenna borgara, og gera þessa aðila ábyrga fyrir afleiðingum athafna sinna.

11.Staðfesta að jafnrétti kynjanna og sanngirni séu forsendur sjálfbærar þróunar og tryggja aðgengi allra að menntun, heilsugæslu og tækifærum í viðskiptalífinu.

a.Tryggja að mannréttindi kvenna og stúlkna séu virt og ofbeldi gagnvart þeim hætti.

b.Hvetja til virkrar þátttöku kvenna á öllum sviðum efnahagslífsins, í stjórnmálum, félags- og menningarlífi, þar sem þær taki þátt sem fullgildir meðlimir við ákvarðanatöku, stjórnun og í því að njóta ávinnings.

c.Styrkja fjölskyldur og tryggja að allir fjölskyldumeðlimir njóti öryggis og ástúðar.

12.Verja rétt allra, án nokkurrar mismununar, til náttúrulegs og félagslegs umhverfis sem styðji við mannlega reisn, líkamlega og andlega heilsu, með sérstakri áherslu á rétt frumbyggja og minnihlutahópa.

a.Útrýma öllum tegundum mismununar, svo sem mismununar vegna kynþáttar, litarháttar, kyns, kynhneigðar, trúar, tungumáls eða uppruna.

b.Staðfesta rétt frumbyggja til andlegrar iðkunar sinnar og þekkingar, lands og auðlinda og til að nýta þessar auðlindir til lífsviðurværis á sjálfbæran hátt.

c.Virða og styðja við ungt fólk í samfélögum okkar, og gera þeim kleift að uppfylla mikilvægt hlutverk sitt við að skapa sjálfbær samfélög.

d.Vernda og endurbyggja staði sem hafa sérstakt menningarlegt eða trúarlegt gildi.

IV. Lýðræði, ofbeldisleysi og friður

13.Styrkja lýðræðislegar stofnanir á öllum stigum, sjá til þess að stjórnsýsla sé gagnsæ og ábyrg og að sem flestir hafi aðgang að ákvarðanatöku og að dómskerfi.

a.Styðja rétt allra til að fá skýrar upplýsingar í tæka tíð sem varða umhverfismál, framkvæmdaáætlanir og aðgerðir sem eru líklegar til að hafa áhrif á viðkomandi einstaklinga eða sem þeir hafa áhuga á.

b.Styðja borgaralegt samfélag, bæði staðbundið, svæðisbundið og hnattrænt, og hvetja til virkrar þátttöku allra áhugasamra einstaklinga og samtaka í ákvarðanatöku.

c.Vernda skoðanafrelsi, tjáningafrelsi og réttinn til friðsamlegra mótmæla, til að safnast saman og stofna samtök.

d.Koma á fót árangursríku og skilvirku aðgengi að stjórnsýslu og óháðum dómstólum, þar með talið úrræðum og endurbótum til að takast á við skaða á umhverfinu og yfirvofandi ógn um slíkan skaða.

e.Útrýma spillingu í öllum opinberum og einkareknum stofnunum.

f.Styrkja grasrót samfélaga og aðstoða þau við að hlúa að umhverfi sínu. Gera það stjórnsýslustig ábyrgt fyrir umhverfisvernd sem er best fært að fylgja þessari ábyrgð eftir á skilvirkan hátt.

14.Samþætta þekkingu, lífsgildi og hæfni sem þörf er á fyrir sjálfbæran lífsstíl inn í formlega menntun og símenntun.

a.Sjá öllum, sérstaklega börnum og unglingum, fyrir tækifærum til menntunar sem geri þeim mögulegt að leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar.

b.Hvetja til þess að fjallað verði um listir og heimspekileg fræði sem og raunvísindi í fræðsluefni um sjálfbæra þróun.

c.Efla hlutverk fjölmiðla í að auka vitund um vistfræðilegar og samfélagslegar áskoranir.

d.Viðurkenna mikilvægi kennslu í siðfræði og andlegum gildum til að lífstíll verði sjálfbærari.

15.Koma fram við allar lífverur af virðingu og tillitssemi.

a.Koma í veg fyrir að komið sé illa fram við húsdýr og gæludýr og vernda þau fyrir þjáningu.

b.Vernda villt dýr frá veiðiaðferðum sem valda miklum og langvarandi þjáningum sem hægt væri að forða þeim frá.

c.Forðast að eins miklu leyti og mögulegt er að veiða eða eyða tegundum sem ekki eru hin eiginlegu skotmörk.

16.Stuðla að umburðarlyndi, friði og samfélagi án ofbeldis.

a.Hvetja og styðja við gagnkvæman skilning, einingu og samvinnu milli fólks innan sama ríkis og milli ríkja.

b.Koma í framkvæmd heildrænum áætlunum sem koma í veg fyrir ofbeldisfull átök og nota aðferðir sem miða að samvinnu við úrlausn á umhverfisdeilum og öðrum átakamálum.

c.Draga úr hernaði í varnarmálum þjóðríkja þar til varnir ríkis eru komnar á það stig að vera einungis varnarkerfi án þess að ögra. Beina því fjármagni sem áður fór í hernaðaruppbyggingu í friðsamleg verkefni, þar með talið endurheimt vistkerfa.

d.Útrýma kjarnorkuvopnum, efna- og eiturvopnum sem og öðrum gereyðingarvopnum.

e.Tryggja að notkun sporbrauta og svæða í geimnum styðji við umhverfisvernd og frið.

f.Viðurkenna að friður sé eitthvað sem verður til þegar einstaklingar ná sátt við sjálfa sig, annað fólk, aðra menningarheima, önnur lífsform, Jörðina og þá stærri heild sem við erum öll hluti af.

Leiðin áfram

Sameiginleg örlög okkar hvetja okkur meir en nokkru sinni áður í sögunni til að leita að nýju upphafi. Slík endurnýjun er það loforð sem felst í grunngildum þessa Sáttmála Jarðar. Til að uppfylla þetta loforð þurfum við að skuldbinda okkur til að innleiða og halda á lofti þeim gildum og markmiðum sem er að finna í Sáttmálanum.

Þetta krefst hugarfarsbreytingar og nýrrar skynjunar á sameiginlegri ábyrgð og því hversu háð við erum hvert öðru innbyrðis. Við þurfum að nýta ímyndunaraflið til að þróa og tileinka okkur sýn á sjálfbæran lífsstíl sem hægt er að innleiða í okkar nánasta samfélagi, í því ríki sem við búum í, á svæðisvísu og á heimsvísu. Menningarleg fjölbreytni er verðmætur arfur og ólíkir menningarheimar munu finna sínar eigin sérstöku leiðir við að móta þessa sýn. Við verðum að dýpka og útvíkka þá alþjóðlegu umræðu sem skapaði Sáttmála Jarðar, því að við getum margt lært af áframhaldandi sameiginlegri leit að sannleika og visku.

Lífið felur oft í sér togstreitu milli mikilvægra gilda. Þetta getur þýtt að taka þarf erfiðar ákvarðanir. Samt sem áður verðum við að finna leiðir til að búa til samhljóm milli fjölbreytni og einingar, frelsis og sameiginlegra hagsmuna og skammtíma- og langtímamarkmiða. Hver einstaklingur, fjölskylda, samtök og samfélag hefur mikilvægu hlutverki að gegna. Kalla þarf til leiks bæði listafólk, vísindamenn- og konur, menntastofnanir, fjölmiðla, fyrirtæki, félagasamtök og stjórnvöld til að veita skapandi leiðsögn. Samstarf stjórnvalda, borgaralegs samfélags og fyrirtækja er lykilatriði fyrir árangursríka stjórnun.

Til þess að byggja upp sjálfbært hnattrænt samfélag verða þjóðir heims að endurnýja skuldbindingar sínar gagnvart Sameinuðu þjóðunum, uppfylla þær skyldur sem þær hafa tekið á sig í núgildandi alþjóðlegum samningum og styðja við framkvæmd grunngilda Sáttmála Jarðar með því að samþykkja lagalega bindandi alþjóðlegan samning um umhverfi og þróun.

Látum nútímans verða minnst fyrir vakningu í endurnýjaðri lotningu fyrir lífinu, ákveðinn ásetning að vinna að sjálfbærri þróun, og aukinn kraft í baráttunni fyrir jafnrétti, friði og lífsgleði.


Frá Sáttmála Jarðar til HeimVeru

Tengsl mín við Sáttmála Jarðar ná lengra aftur en HeimVera.

Ég lauk diplómanámi í Education for Sustainable Development við Earth Charter Center for Education for Sustainable Development árið 2018. Árin þar á eftir lá starfsleið mín fyrst og fremst á sviði mannréttinda, inngildingar og samfélagsbreytinga.

Hugmyndirnar úr náminu fylgdu mér þó áfram.

Þegar HeimVera fór að taka á sig mynd leitaði ég aftur til Sáttmála Jarðar — en nú með spurningu sem hefur orðið ein af grunnspurningum HeimVeru:

Hvernig verða stórar hugmyndir um sjálfbærni, réttlæti og umhyggju hluti af lífinu sem við lifum á hverjum degi?

Hvað merkir umhyggja fyrir samfélagi lífsins þegar við stöndum inni í eldhúsi?

Þegar við kaupum inn?

Þegar við göngum fram hjá tré?

Þegar við ákveðum hvernig við verjum tíma okkar?

Þegar við hugsum um hvað okkur finnst fallegt, réttlátt og eftirsóknarvert?

Sjálfbærni verður ekki aðeins til við stór samningaborð, í stefnum stjórnvalda eða alþjóðlegum markmiðum.

Hún verður líka til í hversdagslífinu.

Í því sem við veitum athygli.

Í því sem okkur þykir vænt um.

Í því hvernig við sjáum okkur sjálf í samhengi við annað fólk, náttúruna og annað líf.

Og í litlu ákvörðununum sem raðast saman og verða að lífi.

Að skapa heiminn innan frá og út

Sáttmáli Jarðar dregur upp mynd af heimi þar sem virðing fyrir náttúrunni, mannréttindi, réttlæti og friður haldast í hendur.

HeimVera tekur þessar stóru hugmyndir og færir þær nær.

Inn á heimilið.

Inn í hversdaginn.

Inn í líkamann.

Inn í það sem við veitum athygli.

Því til þess að skapa öðruvísi heim þurfum við líka að geta ímyndað okkur hvernig það væri að lifa í honum.

HeimVera er tilraunavettvangur fyrir þann möguleika.

← Aftur á forsíðu HeimVeru