← Fylgdu forvitninniHeimVera

Lifandi orðabókin

Orðin sem við notum hjálpa til við að móta heiminn sem við tökum eftir.

Lifandi orðabókin — hljóðheimur
Um Lifandi orðabókina +

Tungumálið gerir meira en að hafa orð yfir heim sem þegar er snyrtilega skipt niður í hluti. Orð draga mörk, beina athygli og gera sum tengsl sýnilegri en önnur. Þegar menning nefnir fyrirbæri aftur og aftur sem aðskilda hluti getum við farið að upplifa þau þannig. En lífið er líka hreyfing, tengsl, ferli og gagnkvæmni. Að breyta orðunum sem við notum breytir ekki veruleikanum með töfrum — en það getur breytt því sem við tökum eftir, leitum svara við og getum myndað okkur.

Ófullgerð orðabók

Lifandi orðabókinni er ekki ætlað að vera yfirvald sem festir merkingu í eitt skipti fyrir öll. Hún er staður til að safna orðum sem hjálpa okkur að spyrja annarra spurninga. Skilgreiningarnar eru til fljótandi. Merking getur dýpkað með rannsóknum, reynslu og samtali — og þér getur dottið í hug nýtt orð til að skoða. Fyrst og fremst er orðabókin leikvöllur þar sem við getum mátað nýjar skilgreiningar og hugmyndir við orð sem við þekkjum.

Hvert orð hér fyrir neðan opnast sem lítil hugmyndasíða. Við byrjum á hefðbundinni merkingu og losum síðan aðeins um hana: Hvaða forsendur leynast inni í orðinu? Hvað verður sýnilegt ef við skoðum aftur? Skilgreining HeimVera er ekki sett fram sem lokasvar heldur vinnutilgáta og leikur— eitthvað til að hugsa með, efast um og móta áfram.

Þetta skiptir máli vegna þess að breytingar á því hvernig við lifum geta stundum krafist breytinga á tungumálinu sem við höfum til umráða. Ef við eigum aðeins orð yfir heimili sem eign, náttúru sem eitthvað utan okkar, hugsun sem eitthvað sem á sér stað inni í höfðinu, árangur sem framleiðni og hvíld sem andstæðu hennar, þrengja þessar merkingar hljóðlega að þeirri framtíð sem við getum ímyndað okkur. Orðabókin er tilraun til að gera þessar forsendur sýnilegar — og spyrja hvort önnur skilgreining geti hjálpað okkur að lifa öðruvísi.

AÐ TILHEYRA
Hin kunnuglega merking

Að vera samþykktur sem hluti af stað eða hópi.

Skoðum aftur.

Hvað ef það að tilheyra er ekki einfaldlega að vera boðin velkomin á stað eða í hóp heldur að finna að við séum hluti af honum? Sú tilfinning getur vaxið með aðgengi, minningum, hefðum, menningu og í þeim litlu ummerkjum sem við fáum frelsi til að skilja eftir okkur sjálf. Staður eða hópur sem við tilheyrum skapar ekki aðeins rúm fyrir okkur — hann leyfir okkur að taka þátt, leggja okkar að mörkum og breyta einhverju með nærveru okkar. Kannski tilheyrum við þegar boðið er ekki „þú mátt vera hér“ heldur „skapaðu með okkur“.

Skilgreining HeimVera:

Að tilheyra er sú upplifun að vera hluti af stað eða hóp — frelsi til að vera, taka þátt, leggja að mörkum og skilja ummerki eftir sig.

ÁRANGUR
Hin kunnuglega merking

Að ná tilætluðum árangri, oft mældur í stöðu, framleiðni, peningum eða viðurkenningu.

Skoðum aftur.

Hvað ef árangur snýst ekki um að hefja sig yfir heiminn, stíga út úr tempói lífsins til að komast hraðar og vera meira heldur að ná tökum á því að lifa í þessum takti?

Skilgreining HeimVera:

Árangur er að lifa í meiri samhljómi við það sem þú metur og tilheyrir.

FEGURÐ
Hin kunnuglega merking

Eitthvað sem er fallegt að horfa á.

Skoðum aftur.

Hvað ef fegurð er ekki eitthvað sem við horfum á heldur eitthvað sem við finnum og upplifum? Fegurð getur búið í birtu sem færist yfir vegg, áferð hlutar sem tíminn hefur máð, kunnuglegri lykt, hljóði, minningu eða því hvernig fólk kemur saman í rými. Kannski er fegurð alls ekki eiginleiki hlutar eða heimilis heldur augnablik tengingar milli okkar og heimsins í kringum okkur.

Skilgreining HeimVera:

Fegurð er merkingarbært skynrænt samband, ekki aðeins sjónrænn mælikvarði.

HEIMILI
Hin kunnuglega merking

Staður þar sem einhver býr.

Skoðum aftur.

Hvað ef heimilið er ekki einfaldlega ílát utan um líf þitt? Hvað ef það tekur þátt í lífinu — mótar venjur þínar, sambönd, taugakerfi, minningar og jafnvel hvernig þú hugsar?

Skilgreining HeimVera:

Heimili er umhverfið sem við mótum í kringum okkur — og sem tekur síðan þátt í að móta okkur.

HUGSUN
Hin kunnuglega merking

Hugsun á sér stað í heilanum, inni í höfðinu.

Skoðum aftur.

Hvað ef hugsun er ekki eitthvað sem heilinn eða hugurinn gerir einn inni í höfðinu á okkur? Hugmyndir um líkamlega og útvíkkaða hugsun beina athygli að því hvernig við notum líkamann, hreyfingu, hluti, rými, annað fólk og umhverfið til að muna, álykta, einbeita okkur, skilja og hugsa.

Skilgreining HeimVera:

Hugsun er athöfn sem getur orðið til í samspili huga, líkama og umhverfis.

HVÍLD
Hin kunnuglega merking

Lausn frá vinnu og áreynslu.

Skoðum aftur.

Hvað ef hvíld er ekki einfaldlega fjarvera framleiðni? Lifandi kerfi skiptast á virkni og endurheimt. Umhverfi getur annaðhvort auðveldað þau umskipti eða haldið áfram að senda merki um ókláruð verkefni, örvun og árvekni.

Skilgreining HeimVera:

Hvíld er virkt ástand sem gerir lifandi kerfi kleift að endurnýja sig.

LEIKUR
Hin kunnuglega merking

Athöfn sem er fyrst og fremst til ánægju og skemmtunar.

Skoðum aftur.

Hvað ef leikur er mikilvægasta leiðin til að uppgötva möguleika og skapa okkur þær aðstæður sem við sækjumst eftir í framtíðinni? Að færa stól, mála eitthvað óvænt, búa til í stað þess að kaupa, nota hlut „vitlaust“ — leikurinn rýfur þá forsendu að hlutirnir verði að vera eins og þeir eru. Sú athöfn býr til plass fyrir ímyndunaraflið.

Skilgreining HeimVera:

Leikur er tilraun um lífið.

LÍKAMI
Hin kunnuglega merking

Efnislegur hluti manneskjunnar, oft aðgreindur frá huganum.

Skoðum aftur.

Hvað ef líkaminn er ekki farartæki sem hýsir hugann og ber hann um heiminn? Við mætum hverju rými með líkamanum rétt eins og huganum, í gegnum öndun, jafnvægi, hitastig, hreyfingu, skynjun, innri skynjun og taugakerfið. Upplifunin er líkamleg áður en hún verður að merkingarbær efniviður hugsunar.

Skilgreining HeimVera:

Líkaminn er ekki aðskilinn frá upplifun og hugsun; hann er órofa hluti hennar og ein af leiðunum sem gerir hugsun mögulega.

NÁTTÚRA
Hin kunnuglega merking

Hinn ómanngerði heimur: landslag, plöntur, dýr og staðir utan borga og bygginga.

Skoðum aftur.

Við tölum gjarnan um að „fara út í náttúruna“, eins og náttúran byrji þar sem borginni lýkur. En hvar byrjar náttúran nákvæmlega? Er stofuplantan náttúra? Bakteríurnar í líkamanum? Líkami okkar sjálfra? Hvað breytist þegar mörkin milli manneskju og náttúru verða óljósari eða jafnvel ósýnileg?

Skilgreining HeimVera:

Náttúran er ekki staður sem við förum á. Hún er lifandi kerfi sem við erum hluti af — og þar með eitthvað sem við sjálf erum.

NÓG
Hin kunnuglega merking

Svo mikið sem nauðsynlegt er.

Skoðum aftur.

Í menningu sem hverfist um neyslu getur verið furðu erfitt að átta sig á hvað er „nóg“. Heimili geta orðið geymslur fyrir úreltar sjálfsmyndir sem við hlaupum til og kaupum í samræmi við tísku og tíðaranda. Hvað ef nóg er einfaldlega punkturinn þar sem athyglin getur færst frá því að eignast yfir í að lifa?

Skilgreining HeimVera:

Nóg er punkturinn þegar meira er ekki lengur gildisaukandi.

SAMFÉLAG
Hin kunnuglega merking

Hópur fólks sem deilir stað, verkefnum, sjálfsmynd eða áhugamáli.

Skoðum aftur.

Hvað ef samfélag er ekki aðeins eitthvað sem verður til á milli fólks heldur líka eitthvað sem umhverfi okkar getur hjálpað til við að rækta? Borð sem við söfnumst við, aukastólar, sameiginlegir garðar, aðgengi fyrir öll, gönguvænar götur og staðir þar sem engin þörf er á að flýta sér geta skapað tækifæri fyrir samfélag til að dafna. Tengsl geta vaxið á milli fólks en aðstæðurnar umhverfið sem tengsl vaxa og dafna í eru að hluta hannaðar. Kannski hefur samfélag arkitektúr — arkitektúr sem skapar rými fyrir samveru, gagnkvæmni og þátttöku í lífinu.

Skilgreining HeimVera:

Samfélag er vefur tengsla sem nærist á endurteknum tækifærum til að hittast, leggja sitt að mörkum og sýna umhyggju.

UMHYGGJA
Hin kunnuglega merking

Að annast einhvern eða eitthvað.

Skoðum aftur.

Hvað ef umhyggja er ekki tilfinning sem við berum til einhvers heldur leið til að vera í tengslum við heiminn? Við sýnum umhyggju með athygli, nærveru, næringu, viðhaldi og viðgerðum — með því að taka eftir því sem þarfnast okkar og bregðast við. Við sköpum aðstæður þar sem fólk, plöntur, dýr, staðir og hlutirnir sem við metum geta haldið áfram að dafna. Kannski er umhyggja ein leið til að viðurkenna að ekkert er til alveg eitt og sér: lífið grundvallast á gagnkvæmum tengslum.

Skilgreining HeimVera:

Umhyggja er virk þátttaka í að viðhalda lífi.

VELLÍÐAN
Hin kunnuglega merking

Að vera heilbrigð, hamingjusöm og líða vel.

Skoðum aftur.

Hvað ef vellíðan er ekki einstaklingsbundið afrek eða varanlegt ástand? Vellíðan breytist með tengslum, öryggi, hreyfingu, merkingu, náttúru, aðstæðum og umhverfinu sem við dveljum í.

Skilgreining HeimVera:

Vellíðan er síbreytilegt samband lifandi veru við aðstæðurnar í kringum hana.

ÞÆGINDI
Hin kunnuglega merking

Lausn frá óþægindum.

Skoðum aftur.

Hvað ef þægindi eru ekki fjarvera óþæginda heldur sú tilfinning að vera haldið í nægu öryggi til að mæta lífinu? Stundum þurfum við mýkt, skjól, kunnugleika og fyrirsjáanleika. En við þurfum líka hreyfingu, áskorun, undrun og hið ókunnuga. Líf sem snýst um lausn frá óþægindum eða átakaleysi getur orðið smærra og líflausara. Kannski verndar dýpsta tegund þæginda okkur ekki fyrir áskorunum lífsins heldur veitir okkur öruggan stað til að mæta þeim.

Skilgreining HeimVera:

Þægindi eru upplifun af nægum stuðningi til að geta slakað á, endurheimt jafnvægi og viðhaldið þátttöku.

ÞÖRF
Hin kunnuglega merking

Eitthvað sem er nauðsynlegt eða mjög eftirsótt.

Skoðum aftur.

Við byrjum oft hönnun á því að hugsa um hluti: Hvaða sófa þarf ég? Hvaða lit eiga veggirnir að vera? Hvað á ég að kaupa? En hvað ef við byrjuðum á lífinu í staðinn? Hvernig vil ég að mér líði hér? Hvað þarf ég til að hvílast, tengjast, hreyfa mig, skapa, leika, draga mig í hlé eða tilheyra? Þegar við byrjum á mannlegum þörfum fremur en hlutum snýst hönnun síður um að raða hlutum og meira um að skapa aðstæður þar sem lífið fær að dafna.

Skilgreining HeimVera:

Þörf er eitthvað sem lífið biður umhverfið um að hjálpa til við að uppfylla.

Skoða allt efni