
Undrunin kom fyrst.
Um einu og hálfu ári áður en ég fæddist sat mamma límd við sjónvarpsskjá í hjólhýsahverfi í Bradenton í Flórída, þar sem fjölskylda mín bjó þá. Það var júlí 1969. Apollo 11. var kominn til tunglsins. Skömmu síðar steig Neil Armstrong út á yfirborð þess og lýsti því yfir að þetta væri „eitt lítið skref fyrir mann, en risastökk fyrir mannkynið“. Hann hafði rétt fyrir sér — en kannski á annan hátt en við áttuðum okkur á þá.
Mamma rifjaði þessa sögu upp, svo oft og af svo mikilli undrun og eldmóði, að ég segi stundum að ég hafi drukkið mikilvægi þessa augnabliks í mig með móðurmjólkinni.
Það sem hefur lifað með mér er ekki það sem mannkynið uppgötvaði um tunglið heldur það sem ferðin gerði okkur mögulegt að uppgötva um jörðina. Í fyrsta sinn gat manneskjan farið nógu langt í burtu til að líta til baka á veröld okkar sem eina heild: afmarkaða og lýsandi plánetu sem svífur eins og brothætt marmarakúla í geimnum. Þessi mynd hefur alltaf vakið með mér undrun og forvitni.

Löngu síðar, þegar ég heyrði um yfirsýnisáhrifin — The Overview Effect — fann ég orð yfir eitthvað sem ég hafði lengi skynjað: stundum er ekki það sama að vita eitthvað og að upplifa það. Við vissum kannski að jörðin væri ein, en samt var veröld okkar það ekki.
Það er engin tilviljun að ljósmyndir sem geimfarar tóku af jörðinni úr geimnum urðu fljótt táknmyndir þeirra náttúruverndarhreyfinga sem við þekkjum í dag.
Forvitnin sem ég tengi við myndir af jörðinni hvarf mér aldrei. Hún þróaðist í dálæti á ferðalögum, náttúruupplifunum og löngun til að skilja þennan undarlega, fallega og flókna heim sem við lifum í.
Þessi löngun til að skilja leiddi mig í heimspekinám. Þar kveikti einn af kennurunum mínum Páll Skúlason, í mér með útskýringu sem hefur fylgt mér síðan: heimspekin verður til þegar við undrumst frammi fyrir veruleikanum.
Þetta finnst mér falleg hugsun. Undrun brýtur upp hversdagsleikann. Undrun fær okkur til að hætta að mæta heiminum sem sjálfsögðum hlut og sjá eitthvað nýtt. Undrun getur vakið forvitni og löngun til að skilja, uppgötva, læra og upplifa. Og það sem er kannski mikilvægast fyrir HeimVera: undrun getur losað okkur úr viðjum þess sem virðist óhjákvæmilegt. Þegar við fáum nýja sýn á hið kunnuglega verður auðveldara að ímynda sér að hlutirnir gætu verið öðruvísi en þeir eru.
Mörgum árum síðar leiddi forvitnin og löngunin til að skilja að sjálfbærni. Ég lauk diplómanámi í sjálfbærnikennslu hjá Jarðarsáttmálanum. Þar var verkefnið að skoða tengsl okkar við náttúruna og það gildismat og þá hugsun sem við þurfum að temja okkur til að byggja sjálfbærari heim.
Smám saman fóru ólíkir þræðir að fléttast saman: heimspeki, sjálfbærni, náttúra, hönnun, líkamleiki, taugakerfið, tungumál og ímyndunarafl. Að ógleymdum áhuga mínum á því hvernig umhverfið í kringum okkur tekur þátt í að móta tilveru okkar, líðan, tilfinningar og hugsun.
Að lokum leiddu þessar hugleiðingar inn í nánasta og persónulegasta umhverfi okkar allra: heimilið. Ég fór að velta fyrir mér hvað myndi gerast ef við hættum að hugsa um heimilið fyrst og fremst sem fjárfestingu sem við hönnum en færum þess í stað að líta á það sem umhverfi sem við erum í stöðugu sambandi við — vistkerfi sem á í eilífu samspili við líkama okkar, huga og taugakerfi. Mótar venjur og tengsl, geymir minningar, styður sjálfsmynd og verður jafnvel hluti af því hvernig og hvað við hugsum.
Þessi vegferð varð að HeimVera. Og hún byrjar þar sem heimspekin á upptök sín: í undrun, forvitni, lönguninni til að skilja og viljanum til að spyrja nýrra spurninga.
Hvað ef heimilið gæti verið öðruvísi?