← Fylgdu forvitninniHeimVera

Hugleiðingar

Sögur og vangaveltur um hversdaginn, undrun og tengsl okkar við lífið. Spurningar sem mega fylgja okkur áfram.

Hugleiðingar — hljóðheimur
01
Nýjasti pistillinn · Anna Lára Steindal

Heiminn inn í stofu

Við hugsum gjarnan um hönnun sem eitthvað sem við gerum við hluti og rými. Við sníðum, röðum, byggjum og breytum þar til umhverfið þjónar okkur betur eða lítur út eins og við viljum.

En sambandið gengur í báðar áttir.

Við hönnum umhverfið okkar og umhverfið tekur síðan þátt í að móta okkur.

Borð kallar á samveru. Bekkur býr til tækifæri fyrir samtal eða hvíld. Eldhús getur gert það auðvelt að elda hollan og næringarríkan mat eða hita upp tilbúinn mat. Það getur auðveldað okkur að nýta hráefnin vel og draga úr matarsóun eða gert hvort tveggja erfiðara. Sýnileg verkfæri geta minnt okkur á að gera við eitthvað í stað þess að henda því. Stóll á réttum stað getur orðið til þess að við setjumst niður, horfum út um gluggann og gerum ekki neitt í smástund.

Hönnun snýst því ekki aðeins um hvernig hlutir líta út. Hönnun mótar aðstæður fyrir það sem við gerum og hvernig við gerum það.

Og þar verður hönnun að afli til breytinga.

Ef við breytum aðstæðunum getum við gert aðra hegðun, öðruvísi tilveru auðveldari og líklegri. Ef hegðunin endurtekur sig getur hún orðið að venju. Og venjurnar okkar eru ekki aðskildar frá því hver við erum. Þær eru hluti af því hvernig við lifum og hvernig við birtumst í heiminum.

Þess vegna er heimilið áhugaverður staður til að átta okkur betur á því hvernig við getum breytt heiminum.

Byrjum smátt

Sjálfbærni er eitt stærsta verkefni samtímans — og kannski einmitt þess vegna getur verið svo erfitt að vita hvernig við eigum að bregðast við því.

Loftslagsbreytingar, hnignun vistkerfa, auðlindanotkun og umbreyting hagkerfa eru svo stór og flókin viðfangsefni að einstaklingurinn getur auðveldlega upplifað sig smáan og jafnvel vonlausan gagnvart þeim. Við vitum að breytinga er þörf en sjáum ekki endilega hvernig við sjálf getum orðið raunverulegir þátttakendur í þeim breytingum.

Sjálfbærni birtist þá gjarnan sem eitthvað sem einhver annar ber ábyrgð á og lausnirnar verði til einhverstaðar annars staðar — á ráðstefnum, í stefnumótun, í tæknilausnum og ákvörðunum stjórnvalda og fyrirtækja.

Eða þá að sjálfbærni birtist sem listi yfir allt það sem þarf að banna eða draga úr.

Kaupa minna. Keyra minna. Fljúga minna. Nota minna.

Allt skiptir þetta máli. En það er erfitt að byggja nýjan heim eingöngu á því sem við eigum að hætta að gera.

Við þurfum líka að geta spurt:

Hvernig viljum við lifa í staðinn?

Heimilið sem tilraunastofa

Heimilið gefur okkur frábært tækifæri til að rannsaka þá spurningu.

Þar fer stór hluti hversdagslífsins fram. Þar borðum við, hvílumst, neytum, sköpum, söfnum hlutum, hendum hlutum, gerum við, ræktum tengsl, erum ein og eigum samfélag við aðra.

Og þar höfum við oft meira svigrúm til að gera tilraunir en annars staðar.

Hvað gerist ef við gerum við í stað þess að kaupa nýtt?

Ef við fáum lánað í stað þess að eiga?

Ef við búum til rými sem gerir samveru auðveldari?

Ef við ræktum eitthvað?

Ef við gerum náttúrunni meira pláss?

Ef við breytum því sem við eigum þegar í stað þess að skipta því út?

Eða ef við stöldrum einfaldlega við áður en við kaupum næsta hlut og spyrjum:

Hvað er það sem mig vantar í raun?

Kannski er það ekki nýr sófi heldur meiri samvera. Ekki meira geymslupláss heldur færri hlutir. Ekki fallegra heimili heldur meiri ró, leikur, sköpun eða tilfinning fyrir því að tilheyra, vera huti af einhverju.

Þá breytast forsendur hönnunar. Við erum ekki lengur að hugsa um hvernig sófa við viljum eða hvaða litur fer best í stofunni. Þá notum við hönnun meðvitað til að búa til aðstæður fyrir lífið sem við viljum lifa.

Gerum tilraunir

Tilraun þarf ekki að takast.

Það er einmitt kosturinn við tilraunir.

Við getum prófað eitthvað, tekið eftir því sem gerist og ákveðið hvort við viljum halda áfram, breyta eða prófa eitthvað allt annað.

Í því ferli lærum við meira en hvernig við viljum hafa heimilið okkar.

Við lærum að spyrja spurninga. Við lærum að sjá valkosti þar sem eitthvað virtist áður sjálfsagt. Við æfum okkur í að gera, laga, deila, rækta, skapa og hugsa öðruvísi um hvað við þurfum og hver við viljum vera.

Við byggjum upp færni. Og kannski ekki síður sjálfstraustið sem fylgir því að uppgötva að við getum breytt einhverju.

Þetta eru verkfæri sem þurfa ekki að verða eftir heima.

Við getum tekið þau með okkur út í hverfið okkar, vinnustaðinn og samfélagið. Þegar við höfum lært að spyrja hvernig við getum skapað aðstæður fyrir meiri samveru heima getum við spurt sömu spurningar um hverfið okkar. Þegar við höfum endurskoðað hvað „nóg“ þýðir við eldhúsborðið heima getur sú spurning fylgt okkur í innkaupum í Bónus, í vinnunni og lífinu almennt.

Stóru kerfisbreytingarnar verða áfram nauðsynlegar.

En við verðum ekki aðeins áhorfendur að þeim.

Við getum æft okkur í taka þátt í breytingunni og kannski fundið að það sem við gerum skiptir máli, bæði fyrir umhverfið og okkur sjálf.

Við getum notað staðinn sem við þekkjum best til að endurhanna lífið og tilveruna um leið og við búum okkur heimili sem styður þarfir okkar.

Er það ekki spennandi tilhugsun? Að heimilið sé ekki bara staðurinn sem búum á í heiminum eins og hann er — heldur staðurinn þar sem við æfum okkur í að búa til þann heim sem við viljum lifa í?

02
Anna Lára Steindal

Líkaminn vissi það sem hugurinn reyndi að rökræða burt

Fyrir um það bil tuttugu árum stóð ég við eldavélina heima hjá mér að búa til kvöldmat.

Yngri sonur minn sat í barnastólnum sínum við eldhúsborðið og sá eldri var að leika sér inni í stofu. Þetta var fullkomlega venjulegur eftirmiðdagur í lífi okkar. Ekkert hafði gerst. Engin sýnileg hætta var á ferð.

Samt helltist skyndilega yfir mig fullkomin vissa um að ég væri að deyja.

Þetta var ekki lauslegur grunur eða óljós ónotatilfinning. Ég vissi að ég væri að deyja. Líkaminn virtist hafa tekið yfir og allt innra með mér sagði að eitthvað hræðilegt væri að gerast.

Ég hringdi í mömmu og bað hana að kalla á sjúkrabíl. Ég bað hana líka að senda pabba strax heim til mín. Hugsunin sem greip mig var að ég vildi ekki að synir mínir þyrftu að vera lengi einir í húsinu með mig dána á eldhúsgólfinu.

Nokkrum mínútum síðar kom pabbi.

En enginn sjúkrabíll.

Mamma er hjúkrunarfræðingur og hafði áttað sig mun fyrr en ég á því hvað var að gerast. Þetta var ofsakvíðakast.

Ég fór samt til læknis. Hann tók upplifun mína alvarlega og lét gera alls konar próf og rannsóknir til að ganga úr skugga um að ekkert líkamlegt amaði að. Ég fór í heilaskanna og hjartalínurit og það var vandlega leitað að skýringu.

Niðurstaðan var að ég væri stálhraust.

En ég hafði engu að síður upplifað mig deyjandi.

Á þeim tíma sem liðinn er síðan þetta atvik átti sér stað hafa ofsakvíðaköstin orðið fleiri. Þennan dag fékk ég því það framtíðar-verkefni í hendur að læra að lifa með kvíðaröskun.

Og það hefur oft gengið vel.

Ég veit núna að ofsakvíði er ekki hættulegt. Ég þekki einkennin og veit að þau líða hjá. Í mörg ár fólst aðferð mín fyrst og fremst í því að nota rökhugsunina gegn kvíðanum. Ég reyndi að rökræða mig út úr ofsakvíðanum.

Hjartað slær hratt en það þýðir ekki að ég sé að fá hjartaáfall.

Öndunin hefur breyst og það er erfitt að kyngja, en ég er ekki að kafna.

Mér líður eins og ég sé í lífshættu en ég er ekki í lífshættu.

Þessi aðferð virkaði að vissu marki. Kvíðinn varð viðráðanlegri og hefur ekki haft stórkostleg áhrif á líf mitt. En hann er sannarlega orkufrekur. Ég hef unnið, alið upp börnin mín, ferðast, lært, tekist á við ábyrgð og gert ótal hluti þrátt fyrir kvíðann.

En hann hvarf aldrei alveg.

Smám saman fór ég að velta því fyrir mér hvort ástæðan gæti verið sú að ég væri að gefa hugsuninni, og sérstaklega rökhugsuninni, of mikið vægi.

Ég hafði litið á kvíðann sem einhvers konar misskilning á milli hugar og líkama sem þyrfti að leiðrétta. En hvað ef líkaminn var alls ekki að misskilja neitt? Hvað ef hann var stundum að vara mig við því að það sem hugurinn reyndi að rökræða sig frá væri ekki gott fyrir mig?

Oft var ég sannarlega í aðstæðum sem voru ekki góðar fyrir mig. Álagið var of mikið. Verkefnin of mörg og vinnudagarnir oft langir. Þá beið fjölskylduábyrgðin heima. Síðar greindist mygla í húsnæðinu þar sem ég starfaði. Ég var þreytt en hélt áfram. Líkaminn sendi merki en hugurinn tefldi alltaf fram rökum um hvers vegna ég ætti að halda áfram.

Ég hafði skyldum að gegna.

Starfið mitt var mikilvægt og mér fannst gaman í vinnunni (og finnst enn).

Aðrir treystu á mig.

Þetta myndi reddast.

Ég þyrfti bara að vera skipulagðari, duglegri, agaðri eða sterkari …

En einhvern veginn gerðist það að ég fór að velta því fyrir mér hvort þessi þaulsetni kvíði, þessi lífsseigi förunautur, væri merki um að líkaminn væri bara búinn að fá sig fullsaddan af þessum rökræðum. Að vissu leyti vissi ég að aðstæðurnar sem ég var í voru ekki góðar fyrir mig. Og ég vissi að manneskja getur ekki endalaust rökhugsað sig í gegnum þreytu, áreiti og of miklar kröfur. Samt hélt ég áfram.

Þangað til ég fór að velta því fyrir mér hvort kvíðinn væri kannski boð um að nota athyglina öðruvísi. Ekki í rökræður heldur í vinalegt samtal við líkamann.

Kannski þurfti ég að lesa merki um að taugakerfið væri undir of miklu álagi. Að líkaminn þurfti eitthvað sem hann fékk ekki. Hvíld. Öryggi. Hreyfingu. Næringu. Náttúru. Næði. Tengsl. Fyrirsjáanleika. Eða einfaldlega færri kröfur.

Þarna mætast reynsla mín af kvíða og hugmyndafræði HeimVera.

HeimVera byggir á þeirri hugsun að við séum ekki ótengdir hugar sem ferðast um heiminn í líkama. Við erum líkamlegar verur í stöðugu sambandi við umhverfið. Líkaminn les birtu, hávaða, hitastig, lykt, loftgæði, þrengsli, óreiðu, hraða og möguleika til hvíldar og hreyfingar. Hann bregst við vinnuálagi, samböndum, ábyrgð og þeim kröfum sem við og samfélagið gerum til okkar.

Margt af þessu gerist áður en við getum sett reynsluna í orð eða formað hana í hugsun.

Við getum þess vegna sagt okkur sjálfum að allt sé í lagi á meðan líkaminn æpir að svo sé ekki.

Þetta þýðir ekki að kvíði sé alltaf bein eða áreiðanleg lýsing á veruleikanum. Það þýðir heldur ekki að hægt sé að lækna kvíðaröskun með því einu að breyta umhverfinu. Kvíði er flókið fyrirbæri og fólk getur þurft meðferð, lyf, stuðning og faglega aðstoð. Ég veit að ég þarf þess.

En ég fór að gera tilraunir með að mæta líkamanum ekki alltaf einsog boðflennu sem þurfi að þagga niður í.

Ég fór að velta því fyrir mér hvað hann var að reyna að segja og hlusta eftir svörunum.

Hvernig líður mér í þessu rými?

Hvað gerist í líkamanum þegar ég geng inn á vinnustaðinn minn, heimilið?

Hvar get ég slakað á?

Hvar er ég uppspennt?

Hvaða aðstæður halda taugakerfinu stöðugt á varðbergi?

Hvaða verkefnin lífsins er ég að þræla mér í gegnum með rökhugsuninni einni saman?

Við búum í menningu sem verðlaunar okkur fyrir að horfa fram hjá líkamanum. Við dáumst að fólki sem vinnur þrátt fyrir þreytu, heldur áfram þrátt fyrir sársauka og sinnir öllum skyldum þótt taugakerfið sé komið að þolmörkum.

Við lærum að túlka merki líkamans sem veikleika, óþægindi eða hindrun í vegi fyrir dugnaði, framleiðni, frama.

En líkaminn er ekki aukahlutur sem hugurinn þarf að dragnast með í gegnum lífið.

Hann er hluti af því hvernig við skynjum, hugsum og lærum.

Við skiljum ekki alltaf tungumál líkamans. Hann talar ekki í fullmótuðum setningum. Hann tjáir sig með spennu, þreytu, hjartslætti, óróleika, verkjum, andþyngslum og stundum lönguninni til að hlaupa burt.

Við getum misskilið þessi skilaboð. En við ættum ekki sjálfkrafa að hunsa þau.

HeimVera varð að einhverju leyti til við þa hugljómun að vellíðan verður ekki eingöngu til í huganum – vellíðan er ekki hugsun. Hún verður til í samspili líkama, hugar, umhverfis, tengsla við aðrar manneskjur og þeirra aðstæðna sem við lifum við. Þess vegna er ekki hægt að hugsa sig til eða frá vellíðan.

Umhverfið, heimili okkar eitt og sér getur ekki verndað okkur fyrir öllu álagi lífsins. En það getur verið staður þar sem líkaminn þarf ekki stöðugt að standa sig og víkja fyrir kröfum sem við gerum til sjálfra okkar. Heimili getur verið staður sem býður upp á hvíld, hreyfingu, kunnugleika, fegurð, leik, náttúru og öryggi. Staður þar sem við getum æft okkur í að hlusta á líkamann í stað þess að hafa hann undir í rökræðum.

Ég nota enn rökhugsunina þegar kvíðinn kemur. Hún hjálpar mér að muna að ég er ekki að deyja og að kvíðakastið mun líða hjá.

En nú reyni ég líka að veita líkamanum athygli og spyrja annarra spurningu.

Ekki aðeins: „Hvernig get ég hugsað mig út úr þessu?“

Heldur líka:

„Hvað veit líkaminn minn sem ég hef ekki enn leyft mér að skilja eða samþykkja?“

03
Anna Lára Steindal

Hönnuðir eru bandamenn í baráttunni fyrir betri heimi

Hönnuðir eru mikilvægir bandamenn í því verkefni að temja okkur sjálfbæran lífsstíl. Sjálfbær efni, hringrásarhugsun, minni sóun, betri orkunýting og endurnýting er nú eðlilegur hluti hönnunar. Hönnuðir leggja dýrmætt lóð á vogarskálar þess að hanna vörur, byggingar og kerfi sem ganga ekki á náttúruauðlindir og endast lengur.

En ég velti því fyrir mér hvort hönnuðir hafi fengið sömu tækifæri til þátttöku í baráttunni fyrir inngildingu, jafnrétti og mannréttindum. Ef svo er ekki er það alvarlegt mál, því hönnuðir móta miklu meira en útlit og notagildi veruleikans sem við lifum í. Hönnuðir móta að stórum hluta aðgengi okkar að honum.

Hönnuðir hanna húsin sem við búum í, göturnar og borgirnar sem við förum um, skóla, vinnustaði, almenningsrými, verslanir, samgöngukerfi og stafræna þjónustu. Þeir hanna húsgögn, verkfæri, skilti, viðmót og sjónrænar upplýsingar. Ákvarðanir þeirra hafa áhrif á hver kemst inn, skilur þær upplýsingar sem miðlað er, hver getur tekið þátt, hvílist, hreyft sig um rými og upplifað að tilheyra.

Of oft er inngilding meðhöndluð sem eitthvað sem má bæta við í lok hönnunarferlisins. En umhverfi sem er hannað út frá of þröngu sjónarhorni verður ekki raunverulega inngildandi með nokkrum lagfæringum í lokin. Fjölbreytileiki mannlífsins þarf að vera hluti af verkefninu frá upphafi.

Ekki misskilja mig, ég veit að hönnuðir hafa vissulega meginreglur algildrar hönnunar að leiðarljósi og leggja sig einlæglega fram um að skapa inngildandi umhverfi. En almennar leiðbeiningar og vönduð hönnunarviðmið geta aldrei komið í stað raunverulegs skilnings sem getur aðeins orðið til þegar hönnuðir tengjast fólki með fjölbreyttar þarfir og getu með beinum hætti, hlusta á reynslu þess og eiga við það merkingarbær samtöl. Inngilding verður ekki til í einangrun við teikniborðið; hún tekur á sig mynd í tengslum við fólkið sem mun búa í eða nota rýmið eða hönnunina. Og jaðarsettir hópar hafa takmörkuð tækifæri til þátttöku og sýnileika. Það er ekki við hönnuði að sakast heldur samfélagsgerð sem býr til jaðarsetningu.

Ef hönnuðir fá tækifæri til að vinna út frá raunverulegum þörfum fjölbreytts hóps fólks held ég að þeir verði betri hönnuðir.

Við erum enn að bíða eftir því að stjórnvöld og yfirvöld taki af skarið og leiði þær breytinga sem þarf til að skapa réttlátari heim. En kannski ættum við að verja miklu meiri orku og krafti í samtal um hönnun, hönnunarmenntun og vera í stöðugt samtali við hönnuði. Hönnuðir geta verið brautryðjendur með því að gera möguleika sýnilega.

Þetta snýst ekki um að ætlast til þess að hönnuðir leysi pólitísk verkefni heldur að gangast við því að umhverfi og hönnun hefur áhrif á daglegan veruleika fólks: dyr, götur, eyðublöð, húsgögn, upplýsingakerfi og stafræn viðmót eru góð dæmi. Gildi eru byggð inn í hlutina sem við hönnum og notum.

Þegar lifuð reynsla er hluti af hönnun frá upphafi birtist aðgengi ekki lengur sem takmörkun á sköpun heldur uppspretta þekkingar og hvati til að fá betri hugmyndir.

Kannski eru hönnuðir mikilvægust bandamenn þeirra sem vinna að mannréttindum og jafnrétti. Kannski er mikilvægast af öllu að dýpka samtalið við þá um heiminn sem okkur dreymir um og hvernig hönnun hans gæti litið út.

Hönnuðir eru þegar bandamenn í einu stærsta umbreytingarverkefni samtímans - sjálfbærni. Er ekki tími til að bjóða þeim af sama krafti inn í baráttuna fyrir jafnrétti, inngildingu og mannréttindum.

04
Anna Lára Steindal

Samverustaður til að hugsa

Vefsíða HeimVera er tilraun til að búa til samverustað. Hún er ekki fullmótað verkefni eða safn endanlegra svara, heldur sameiginlegt rými þar sem við getum komið saman til að hugsa, undrast og efast um allt.

Þetta er staður fyrir hugmyndir sem eru enn á hreyfingu. Við getum prófað þær, leikið okkur með þær og leyft þeim að mæta öðrum hugmyndum.

Við þurfum stað þar sem það er í lagi að vita ekki en spyrja samt. Stað þar sem spurning þarf ekki strax að verða gáfuleg eða nytsamleg og efinn og jafnvel fákunnátta er ekki veikleiki heldur opnun.

HeimVera getur verið rými til að læra hvert af öðru, víkka skilningsrammann og uppgötva að eitthvað kunnuglegt getur litið allt öðruvísi út frá öðru sjónarhorni.

HeimVera getur líka verið staður fyrir hversdagslega heimspeki. Við þurfum ekki að bíða eftir kennslustofu eða lærdómsriti til að spyrja hvað gott líf sé, hvernig við tilheyrum hinum lifandi heimi, hvers umhverfi okkar krefst af okkur eða hvers við þörfnumst frá umhverfinu.

Samverustaður er mikilvægur. Samvera er annað en áhorfendahópur. Fólk kemur ekki aðeins til að sækja hugmyndir heldur tekur með sér eigin reynslu, spurningar og möguleg svör og leggur til rannsóknarinnar

Markmiðið er ekki að halda fólki við endalaust skroll eða breyta athygli þess í söluvöru. Það er að skapa rými fyrir hæga hugsun, ófullgerðar hugmyndir og nýja sýn sem getur breytt skilningi okkar á hinu kunnuglega.

Gestahöfundar geta víkkað samtalið enn frekar. Heimili, líkami og sjálfbærni hafa ólíka merkingu fyrir ólíka líkama, menningu, aldur og aðstæður. Enginn einn höfundur getur rúmað allan þann fjölbreytileika.

Lifandi hugsanasamfélag getur orðið til á mjög einfaldan hátt: Ein manneskja leggur fram hugsun, önnur sér tengingu, bætir við og ramminn strekkist örlítið.

HeimVera er ekki safn af svörum. Hún er boð um að spyrja, vera forvitin, gera tilraunir og rannsóknir – saman.

05
Um Pál Skúlason · Anna Lára Steindal

Undrumst!

Páll Skúlason, kennari minn og síðar rektor Háskóla Íslands, sagði einu sinni að heimspekin ætti upphaf sitt í undrun frammi fyrir heiminum: undrun yfir því að eitthvað sé fremur en ekki neitt. Þessi fullyrðing hafði djúpstæð áhrif á mig.

Páll virtist einhvern veginn hafa gert þessa hugsun að hluta af veru sinni. Hann hafði ótrúlega útgeislun og hlýja nærveru. Áhugi hans á fólki og heiminum var einlægur og hann sagði mér að hann hugsaði um heimspeki og stöðu sína í heiminum hvern einasta dag.

Einu sinni sagði hann frá því þegar hann reyndi að hefja heimspekilegar samræður við fólkið sitt í jólaboði. Svo hló hann að því að fjölskyldan sýndi því takmarkaðan áhuga, en var samt svolítið undrandi á því. En þetta var eitt af því sem var svo dásamlegt við Pál. Fyrir honum var heimspekileg hugsun ekki sérhæfð athöfn aðskilin frá lífinu. Hún átti heima alls staðar. Líka í jólaboðum.

Páll skrifaði líka um tengsl manns og náttúru. Hann skildi að við stöndum ekki utan við heiminn sem við leitumst við að skilja heldur erum við hluti af honum.

Kannski var það mikilvægasta sem Páll kenndi mér að forsenda þess að viðhalda áhuganum á því að hugsa og skilja er að hætta aldrei að undrast. Undrunin er innblásturinn sem gerir okkur kleift að efast um það sem virðist sjálfsagt og sjá heiminn á nýjan hátt.

Hlýja Páls var hluti af lærdómnum. Hann var þannig að ég lærði að hugsun getur verið athygli sem beinist að fólki og heiminum. Engin akademísk aðferð getur kennt það.

Undrunin gefur þessari athygli orku. Hún kemur í veg fyrir að heimspekin verði bara akademísk æfing gerir hana að aðferð til að tengjast heiminum.

Því þegar við nærum hæfileikanum til að undrast höfnum við um leið þeirri hugmynd að það sé ekkert markvert að uppgötva í heiminum.

06
Persónuleg saga · Anna Lára Steindal

Þegar skilningurinn lenti í líkamanum

Í einum áfanga meistaranámi í heimspeki var mér úthlutað texta eftir franska heimspekinginn Jacques Derrida. Verkefnið var að lesa um kenningu sem nefnist afbygging (á ensku deconstruction) og kynna hana síðan fyrir samnemendum mínum. Það var bara eitt vandamál: mér fannst textinn svo flókinn og óaðgengilegur að ég skildi nánast ekkert. Og ef ég skildi hann ekki sjálf gat ég auðvitað ekki útskýrt hann fyrir öðrum.

Þá rakst ég á bók á bókasafninu mínu sem heitir The Ethics of Deconstruction. Þegar ég byrjaði að lesa small eitthvað. Ég skildi Derrida, en ekki með rökhugsuninni. Það er erfitt að koma þessu í orð, en ég skildi einhvern veginn með verund minni fremur en hugsuninni.

Afbygging snýst fremur um að vera á ákveðinn átt en að skilja heimspekileg rök. Til að meðtaka hana þurfum við að upplifa okkur á ákveðinn hátt í heiminum.

Við þurfum að hugsa um okkur sjálf í tengslum; við tungumál, menningu, sögu, fyrri hugsanir, arfgengar forsendur og allt sem hefur mótað skilning okkar og tilveru fram að þeirri stundu. Við erum ekki ótengdir hugar sem nema merkingu utan frá. Við skiljum með allri tilvist okkar.

Það sem gerði þetta augnablik sérstaklega magnað var að upplifunin sjálf var einmitt það sem kenning Derrida gengur út á. Merking verður ekki til í einangrun og hlýtur að einhverju marki að vera breytileg eftir því hver túlkandinn er. Merking verður til í tíma og rúmi, sögu, samhengi og tengslum sem eru jafnvel til staðar áður en við byrjum að hugsa.

Ég hélt kynninguna og tókst að útskýra efnið fyrir samnemendum mínum. Og fékk glimrandi góða einkunn. En það var ekki það aðalmálið.

Aðalmálið var að þessi lærdómur breytti mér til frambúðar. Hann breytti því hvernig ég skil sjálfa mig og heiminn. Þetta voru algjör umskipti.

Fram að þessu hafði ég gert ráð fyrir að merking og skilningur væri eitthvað sem hugurinn öðlaðist með því að ná valdi á röksemdafærslu. Eitthvað algilt sem allir mundu skilja eins ef þeir hugsuðu nógu vel. Sem ég held, nei ég veit núna að er rangt. Þessi upplifun sýndi mér að mikilvægast skilningurinn felst stundum í því að skilja tengsl manneskjunnar við heiminn.

Augnablikið var fræðilegt, líkamlegt og persónulegt í senn. Þess vegna lifir það. Ég hafði ekki aðeins lært eitthvað um Derrida. Ég mætti sjálfri mér á nýjan hátt.

Kannski kviknaði ein af fyrstu hugmyndunum sem leiddu að HeimVera á þessu augnabliki, þegar ég skildi að ég hugsa aldrei ein og hef aldrei gert.

07
Anna Lára Steindal

Ímyndunaraflið er ofurkraftur.

Þegar Star Trek þættirnir voru frumsýndir árið 1966 var mikið af tækninni sem sýnd var í þeim hreinn vísindaskáldskapur. Farsímar, talandi tölvur, myndsímtöl, sjálfvirkar dyr og tæki sem þýddu á milli tungumála tilheyrðu ímyndaðri framtíð.

Sextíu árum síðar eru þessi tækni að stórum hluta hversdagsleg. Við berum samskiptatæki í vasanum, tölum við tölvur, hittumst á skjám og notum tæki sem þýða á milli tungumála á örfáum sekúndum.

Í hverju fólst galdurinn? Það sem þættirnir þeir gerðu var að sýna okkur mögulegan heim sem verkfræðingar, hönnuðir, vísindafólk og frumkvöðlar gátu séð, rætt og velt fyrir sér.

Áður en hægt er að hefjast handa við að gera hið ómögulega mögulegt þarf hið ómögulega að verða hugsanlegt. Ímyndunaraflið gefur hinu óorðna form og getur breytt því sem áður var tómarúm í markmið.

Þess vegna er ímyndunaraflið ekki flótti frá veruleikanum. Það er sennilega mikilvægasta aflið sem knýr og breytir veruleikanum. Sérhvert kenning, mannvirki, verkfæri og lífsmáti var ímyndun áður en það varð raunveruleiki.

Ef við getum ekki ímyndað okkur að samfélagið, heimilið eða tengsl okkar við náttúruna, umhverfið og annað fólk geti verið öðruvísi en það er núna sitjum við föst í forsendum samtímans.

Vísindaskáldskapur virkar oft eins og rannsóknarstofa möguleikanna. Slíkur skáldskapur gefur hugmyndum form, tungumál og birtingar mynd löngu áður en nauðsynleg þekking eða verkfræði er til staðar.

Þegar þessi mynd er komin sem möguleiki inn í menninguna getur fólk úr ólíkum áttum unnið saman að því að raungera hana. Það sem byrjaði sem ímyndun rithöfundar getur orðið að tilgátu fyrir vísindafólk, hönnuði og frumkvöðla: væri í raun hægt að gera þetta?

Sama lögmál gildir um aðra hluti. Við þurfum líka myndir af inngildandi samfélögum, endurnærandi hagkerfum, umhyggjusömum borgum, tilveru og heimilum til að kveikja á ímyndunaraflinu og fara að ímynda okkur eitthvað sem kemur í staðinn fyrir veruleikann sem við lifum í þjónar lífinu ekki á fullnægjandi hátt.

Ímyndunaraflið er ofurkraftur, ekki vegna þess að það sé nógu öflugt eitt og sér til að breyta heiminum, heldur vegna þess að án þess verður breytingin aldrei möguleiki.

Fyrsta skrefið í átt að annarri veröld kann að vera jafn einfalt og jafn erfitt og að kveikja á ímyndunaraflinu.

08
Anna Lára Steindal

Hvað ef sjálfbærni væri gleðiverkefni?

Þegar við tölum um sjálfbærni og loftslagsmál leggjum við oft fram langan lista um alls konar hluti sem við þurfum að láta á móti okkur til að bjarga heiminum: Minni neysla, færri ferðalög, minni hagvöxtur, minni brennsla jarðefnaeldsneytis. Upptalningin getur farið að hljóma eins og drepleiðinleg framtíð sem einkennist af bönnum, takmörkunum, missi og fórnum.

En hvað ef sjálfbærni er gleðiverkefni? Hvað ef umbreytingarnar fram undan fela í sér tækifæri til að auðga líf okkar, styrkja samfélög og endurheimta hæfni sem hraði og neyslumenning nútímans hafa ýtt til hliðar?

Minni hraði gæti gefið okkur meiri athygli. Minni neysla gæti þýtt meiri sköpun, samvinnu og útsjónarsemi. Viðgerðir og samnýting gætu gert okkur mögulegt að endurvekja færni, sögur og tengsl og færa í ríkari mæli aftur inn í hversdagslífið.

Heimili og hverfi sem eru hönnuð með umhyggju að leiðarljósi gætu boðið upp á meiri samskipti, öryggi og vellíðan. Borgir með færri bílum gætu gefið börnum meira frelsi, fullorðnum meiri hreyfingu og öllum hreinna loft og rólegri götur.

Sumar þessara breytinga gætu hægt á hefðbundnum hagvexti, mér dettur ekki í hug að halda öðru fram. En er víst að það verði alslæmt? Af hverju erum við með hagvöxt á heilanum og sannfærð um að hann sé góð mælistika á velsæld og gott líf? Samfélag getur skorað hátt á framleiðsluskala á sama tíma og við erum upp til hópa örmagna, einmana og aftengt þeim lifandi kerfum sem eru forsenda lífs okkar. Reynslan ætti að hafa kennt okkur það.

Þessar hugleiðingar eru ekki tilraun til að gera lítið úr því að verkefnið sem við stöndum frammi fyrir. Ég veit að það er flókið og margslundið. Meiriháttar umbreytingar eru það gjarnan. En ég tek mér það bessaleyfi lað velta því fyrir mér hvað við getum gert gott, enn betra, úr þessum breytingum.

Viðteknar hugmyndir um að velsæld samfélaga gjarnan mæld í því hversu hratt peningar, vörur og auðlindir ferðast um hagkerfið. HeimVera spyr hvort lífið krefjist annars mælikvarða. Betri mælikvarða.

Hvað ef velmegun mælist í rými til hreyfingar, tengslum og aðgengi að náttúru, hreinu lofti, heilbrigðum vistkerfum, umhyggju fyrir lífinu og tækifærum til þátttöku í samfélagi?

Umbreyting getur falið í sér missi og erfiðleika og um leið opnað nýja möguleika. Gleðin dregur ekki úr alvarleika verkefnisins. Hún getur veitt okkur kraft og innblastur á erfiðum tímum.

Sjálfbærni snýst nefnilega ekki aðeins um það sem við þurfum að gefa eftir. Hún snýst líka um allt sem við getum fengið til baka: tíma, athygli, sköpun, heilsu, samfélag og lifandi tengsl við heiminn sem við erum hluti af.

09
Anna Lára Steindal

Undrun er leið til tengingar

Ég held að undrun sé dýrmæt leið til að endurheimta tengsl okkar við heiminn og lífið sjálft. Af því að undrunin býr yfir þeim eiginlega að láta hið kunnuglega verða stórkostlegt.

Sú tilfærsla skiptir máli. Þegar skilningsramminn víkkar verður lífið sjálft aftur sýnilegt: ótrúlega flókið, ólíklegt og dýrmætt.

Við stöndum ekki utan við lífið og horfum á það. Líkamar okkar eru gerðir úr því. Við öndum vegna þess að plöntur anda með okkur. Við urðum til vegna keðjuverkandi tengsla sem hófust löngu á undan okkur og halda áfram eftir okkur.Ef það gefur okkur ekki tilefni til að undrast yfir snilli heimsins þá veit ég ekki hvað gerir það.

Þegar við undrumst finnum við gjarnan fyrir tilfinningu um að vera hluti af einhverju mikilvægu og dýrmætu. Við sjáum heiminn á nýjan hátt í örskotsstund og skiljum hann á nýjan hátt. Undrun getur vakið forvitni, auðmýkt og umhyggju.

Þess vegna er undrun ein af grunnstoðum HeimVera. Undrunin tengir heimilið aftur við líkamann, líkamann við náttúruna og hversdagslífið við hinn stórbrotna lifandi heim.

Þægindarammar eru gagnlegir en geta líka þrengt skynjunina. Þegar reynslan staðfestir í sífellu það sem við teljum okkur þegar vita hverfur mikilfengleiki heimsins og lífsins í bakgrunninn.

Undrunin kviknar þegar þessi rammi opnast. Stærð, fegurð, margbreytileik eða óvænt tenging lyftir okkur upp úr vananum og knýr okkur til að nota athyglina aftur til að sjá eitthvað sem hafði áður farið fram hjá okkur. .

Um stund verður sjálfið minna en um leið stærra án þess að glata verðmæti sínu. Það er á þessum dýrmætu augnablikum sem við upplifum okkur sem þátttakendur í, og hluta af, einhverju sem er stærra en okkar eigið takmarkaða litla líf.

Þessi galdur er traust stoð undir umhyggju. Tengsl eru þá ekki bara hugmynd eða siðferðileg afstaða heldur lifuð reynsla.

10
Anna Lára Steindal

Að velja notað er einfalt en öflugt andóf

Að velja notað er meira en umhverfisvæn eða hagkvæm leið til að innrétta heimili eða spara. Það er einfalt en öflugt andóf gegn gildismati sem segir að nýtt sé alltaf betra, að hægt sé að kaupa sér sjálfsmynd, að nytsamlegir hlutir missi gildi þegar tískan breytist og að gott líf sé söluvara.

Þetta gildismat þjónar okkur ekki lengur. Það ýtir undir sóun og stöðuga tilfinningu fyrir því að það sem við eigum sé ekki nógu gott. Það gerir heimilið að neysluverkefni sem er aldrei tilbúið sem sá griðarstaður sem við þurfum á að halda.

Notaðir hlutir bera með sér sögu, sérkenni og möguleika. Slitið borð, lampi frá ömmu, eða stóll úr nytjamarkaði, þessir hlutir bera með sér ummerki um annað líf en um leið fyrirheit um leið nærveru og notagildi til framtíðar.

Að velja notað krefst þess líka að við virkjum ímyndunaraflið og hvetur okkur til sköpunar. Við tökum eftir möguleikum í stað þess að fylgja tilbúinni auglýsingu. Við getum lagað, málað, sett saman og fundið hlutum nýtt hlutverk.

Að mínum dómi gerir þetta heimilið persónulegra, ekki minna persónulegt. En heimili sem kemur er keypt nýtt eftir IKEA bæklingi. Í stað þess að kaupa tilbúna sjálfsmynd leyfum við heimilinu að vaxa smám saman utan um raunverulegt líf okkar, þarfir og drauma.

Þess vegna tengist það að velja notað hugmyndafræði HeimVera náið. Það metur samfellu meira en nýjungar, útsjónarsemi meira en fullkomnun og tengsl meira en sýndarmennsku.

Andófið sem felst í því ð kaupa notað er hljóðlátt vegna þess að það á sér stað í hversdagslegum ákvörðunum í daglegu líf. Engin stefnuyfirlýsing er nauðsynleg þegar við ákveðum að hlutur þurfi ekki að missa notagildi sitt eða verðmæti bara vegna þess að hann er gamall, ófullkominn eða ekki lengur í tísku.

Þegar nógu magir velja notað fer að hrikta í stoðum þess kerfist sem gerir ráð fyrir endalausri hringrás framleiðslu, kaupa og förgunar. Það heldur heldur því sem þegar er til í notkun og minnir okkur á að verðmæti verða til þegar við veitum hlutum athygli og umhyggju ekki síður en þegar við kaupum þá nýja.

Það felst líka frelsi í því að hafna glansmyndinni sem auglýsingar selja okkur því þá skapast meira rými fyrir okkur sjálf þannig að heimilið rúmar minningar, húmor og merki um hvernig við breytumst eftir því sem lífinu vindur fram.

Að velja notað er því bæði hagnýt og heimspekileg ákvörðun. Hún býður okkur að sjá gnægð þar sem neyslumenningin sér skort og drasl.

11
Anna Lára Steindal

Hvað eiga vellíðan og HeimVera sameiginlegt?

Í almennri umræðu er vellíðan oft sett fram sem persónulegt verkefni.

Við eigum að sofa nóg, borða hollt, hreyfa okkur, hugleiða, draga úr streitu og temja okkur betri venjur. Og vellíðan fylgir í kjölfarið. Ég veit að þetta skiptir allt máli – en ég er ekki viss um að það dugi eitt og sér til að framkalla vellíðan.

Ástæðan er fyrst og fremst sú að þessi nálgun getur líka falið í sér mjög þrönga hugmynd um manneskjuna: að vellíðan verði fyrst og fremst til innra með einstaklingnum og að hann beri sjálfur ábyrgð á að skapa hana.

Ef okkur líður illa spyrjum við því gjarnan hvað sé að okkur og hvað við þurfum að gera öðruvísi.

Hverju gæti það breytta að víkka sjónarhornið og skoða umhverfið líka?

HeimVera byggir á þeirri hugmynd að líðan okkar verði ekki til inni í okkur einum. Hún mótast stöðugt í tengslum okkar við umhverfið.

Líkaminn er sífellt að lesa aðstæðurnar í kringum sig. Birta, hljóð, hitastig, litir, lykt, áferð, rými, óreiða, möguleikar til hreyfingar, merki um öryggi og nærvera annarra lífvera eru mikilvæg dæmi.

Stór hluti þessarar skynjunar á sér stað án þess að við veitum henni meðvitaða athygli. Samt getur hún haft áhrif á taugakerfið, orkuna, einbeitinguna, svefninn, skap okkar og getu til að hvílast, hreyfa okkur, skapa og tengjast öðrum.

Rými getur hjálpað líkamanum að slaka á eða haldið honum í viðbragðsstöðu.

Það getur boðið til hreyfingar eða gert hreyfingu ólíklegri. Það getur stutt við samveru eða aukið einangrun. Það getur hjálpað okkur að einbeita okkur eða krafist stöðugrar, dreifðrar athygli.

Umhverfið er því ekki aðeins bakgrunnur fyrir manneskju sem skapar sér vellíðan með mataræði, venjum og svefni. Það tekur þátt í að skapa hana.

Þarna mætast vellíðan og HeimVera.

HeimVera spyr ekki aðeins: Hvað get ég gert til að láta mér líða betur?

Hún spyr líka: Hvað er umhverfið að gera? Hvaða skilaboð sendir það líkamanum? Hvaða venjur gerir það auðveldar? Hvaða athafnir býður það upp á? Hvaða þarfir styður það og hvaða þarfir verða út undan?

Þetta þýðir ekki að til sé eitt fullkomið heimili sem tryggir vellíðan. Fólk er ólíkt. Líkamar eru ólíkir. Taugakerfi eru ólík og þarfir okkar breytast frá einum degi til annars.

Umhverfi sem veitir einni manneskju ró getur verið of hljótt fyrir aðra. Rými sem vekur gleði hjá einni manneskju getur valdið annarri skynrænu álagi. Sum okkar þurfa skjól og fyrirsjáanleika. Önnur þurfa liti, örvun, hreyfingu og breytingar.

Markmiðið er því ekki að finna eina rétta uppskrift að umhverfi sem ýtir undir vellíðan.

Markmiðið er að verða næmari fyrir sambandinu á milli okkar og umhverfisins og taka eftir því hvað styður við lífið eins og við lifum því í raun og líf okkar eins og við viljum að það sé.

Vellíðan er heldur ekki stöðugt ástand sem við náum einu sinni og eigum síðan að geta viðhaldið. Vellíðan verður til og breytist í tengslum líkama, huga, daglegra venja, náttúru, samfélags og staðar.

Þegar við lítum á vellíðan á þennan hátt hættir hún að vera fullkomlega einstaklingsbundið verkefni.

Hún verður líka hönnunarverkefni, samfélagsverkefni og spurning um þær aðstæður sem við sköpum hvert fyrir annað.

Kannski er kjarninn einfaldlega þessi:

Við búum ekki aðeins í umhverfi okkar.

Við verðum stöðugt til í tengslum við það.

12
Anna Lára Steindal

Hvað eiga inngilding og HeimVera sameiginlegt?

Hver er munurinn á baráttu fyrir inngildingu, réttindum og tækifærum til þátttöku í samfélaginu annars vegar og hugmyndafræði HeimVera hins vegar?

Í grunninn er kannski enginn munur þar á.

Kannski eru þetta tvær leiðir til að segja það sama: Umhverfið þarf að taka mið af fjölbreyttum þörfum fólks. Við eigum öll að geta tilheyrt samfélagi okkar og tekið þátt í því, óháð þeim eiginleikum eða aðstæðum sem verða grundvöllur jaðarsetningar og útilokunar.

Við tölum oft um útilokun og jaðarsetningu eins og vandinn búi í einstaklingnum. Manneskja passar ekki inn vegna fötlunar, aldurs, uppruna, kynhneigðar, taugafjölbreytileika eða einhvers annars eiginleika.

En hvað gerist ef við beinum athygli að umhverfinu í staðinn?

Byggingar, kerfi, venjur og óskráðar reglur samfélagsins byggja allar á forsendum um hvernig fólk er. Hver getur gengið upp stiga. Hver getur tileinkað sér flóknar upplýsingar. Hver getur tjáð sig með ákveðnum hætti. Hver þolir hávaða, hraða og skynræna örvun. Hver hefur þann tíma, orku, peninga og stuðning sem þarf til þess að geta tekið þátt.

Þegar þessar forsendur eru of þröngar verður mannlegur fjölbreytileiki að „vandamáli“. En fjölbreytileikinn er ekki vandamálið. Vandamálið er umhverfi sem er hannað út frá of þröngum forsendum.

Þarna mætast inngilding og HeimVera.

HeimVera byggir á þeim skilningi að umhverfið sé ekki hlutlaus sviðsmynd. Það tekur þátt í að móta líf okkar, vellíðan, tækifæri, möguleika og hegðun. Rými getur boðið okkur velkomin eða ýtt okkur út. Kerfi getur gert þátttöku mögulega eða ómögulega. Samfélag getur gert ráð fyrir mannlegum fjölbreytileika eða krafist þess að fólk aðlagi sig þröngum viðmiðum.

Inngilding snýst því ekki einfaldlega um að hleypa fleira fólki inn í samfélagið eins og það er núna. Hún krefst þess að við spyrjum hvort samfélagið sjálft þurfi að breytast. Og hvernig.

Við tengjum sjálfbærni gjarnan við náttúruna. Við tölum um að lifa innan þolmarka jarðar, vernda vistkerfi og rækta annars konar tengsl við hinn lifandi heim. Það er grundvallarþáttur sjálfbærni.

En sjálfbærni byggir líka á samfélagslegri stoð.

Samfélag getur ekki talist sjálfbært ef það útilokar hluta fólksins sem tilheyrir því. Félagsleg sjálfbærni felur í sér réttindi, öryggi, inngildingu og raunveruleg tækifæri til þátttöku. Hún krefst þess að við sköpum umhverfi, stofnanir og samfélagskerfi sem viðurkenna mannlegan margbreytileika til fulls.

Að lifa í sátt við náttúruna og byggja samfélag þar sem öll tilheyra eru ekki tvö aðskilin verkefni. Hvort tveggja krefst þess að við viðurkennum tengsl, gagnkvæm tengsl og fjölbreytileika lífsins.

Kannski er kjarninn einfaldlega þessi:

Verkefnið er ekki að láta alla passa inn í samfélagið. Við eigum að breyta samfélaginu þannig að það rúmi okkur öll.

Skoða allt efni