Heiminn inn í stofu
Við hugsum gjarnan um hönnun sem eitthvað sem við gerum við hluti og rými. Við sníðum, röðum, byggjum og breytum þar til umhverfið þjónar okkur betur eða lítur út eins og við viljum.
En sambandið gengur í báðar áttir.
Við hönnum umhverfið okkar og umhverfið tekur síðan þátt í að móta okkur.
Borð kallar á samveru. Bekkur býr til tækifæri fyrir samtal eða hvíld. Eldhús getur gert það auðvelt að elda hollan og næringarríkan mat eða hita upp tilbúinn mat. Það getur auðveldað okkur að nýta hráefnin vel og draga úr matarsóun eða gert hvort tveggja erfiðara. Sýnileg verkfæri geta minnt okkur á að gera við eitthvað í stað þess að henda því. Stóll á réttum stað getur orðið til þess að við setjumst niður, horfum út um gluggann og gerum ekki neitt í smástund.
Hönnun snýst því ekki aðeins um hvernig hlutir líta út. Hönnun mótar aðstæður fyrir það sem við gerum og hvernig við gerum það.
Og þar verður hönnun að afli til breytinga.
Ef við breytum aðstæðunum getum við gert aðra hegðun, öðruvísi tilveru auðveldari og líklegri. Ef hegðunin endurtekur sig getur hún orðið að venju. Og venjurnar okkar eru ekki aðskildar frá því hver við erum. Þær eru hluti af því hvernig við lifum og hvernig við birtumst í heiminum.
Þess vegna er heimilið áhugaverður staður til að átta okkur betur á því hvernig við getum breytt heiminum.
Byrjum smátt
Sjálfbærni er eitt stærsta verkefni samtímans — og kannski einmitt þess vegna getur verið svo erfitt að vita hvernig við eigum að bregðast við því.
Loftslagsbreytingar, hnignun vistkerfa, auðlindanotkun og umbreyting hagkerfa eru svo stór og flókin viðfangsefni að einstaklingurinn getur auðveldlega upplifað sig smáan og jafnvel vonlausan gagnvart þeim. Við vitum að breytinga er þörf en sjáum ekki endilega hvernig við sjálf getum orðið raunverulegir þátttakendur í þeim breytingum.
Sjálfbærni birtist þá gjarnan sem eitthvað sem einhver annar ber ábyrgð á og lausnirnar verði til einhverstaðar annars staðar — á ráðstefnum, í stefnumótun, í tæknilausnum og ákvörðunum stjórnvalda og fyrirtækja.
Eða þá að sjálfbærni birtist sem listi yfir allt það sem þarf að banna eða draga úr.
Kaupa minna. Keyra minna. Fljúga minna. Nota minna.
Allt skiptir þetta máli. En það er erfitt að byggja nýjan heim eingöngu á því sem við eigum að hætta að gera.
Við þurfum líka að geta spurt:
Hvernig viljum við lifa í staðinn?
Heimilið sem tilraunastofa
Heimilið gefur okkur frábært tækifæri til að rannsaka þá spurningu.
Þar fer stór hluti hversdagslífsins fram. Þar borðum við, hvílumst, neytum, sköpum, söfnum hlutum, hendum hlutum, gerum við, ræktum tengsl, erum ein og eigum samfélag við aðra.
Og þar höfum við oft meira svigrúm til að gera tilraunir en annars staðar.
Hvað gerist ef við gerum við í stað þess að kaupa nýtt?
Ef við fáum lánað í stað þess að eiga?
Ef við búum til rými sem gerir samveru auðveldari?
Ef við ræktum eitthvað?
Ef við gerum náttúrunni meira pláss?
Ef við breytum því sem við eigum þegar í stað þess að skipta því út?
Eða ef við stöldrum einfaldlega við áður en við kaupum næsta hlut og spyrjum:
Hvað er það sem mig vantar í raun?
Kannski er það ekki nýr sófi heldur meiri samvera. Ekki meira geymslupláss heldur færri hlutir. Ekki fallegra heimili heldur meiri ró, leikur, sköpun eða tilfinning fyrir því að tilheyra, vera huti af einhverju.
Þá breytast forsendur hönnunar. Við erum ekki lengur að hugsa um hvernig sófa við viljum eða hvaða litur fer best í stofunni. Þá notum við hönnun meðvitað til að búa til aðstæður fyrir lífið sem við viljum lifa.
Gerum tilraunir
Tilraun þarf ekki að takast.
Það er einmitt kosturinn við tilraunir.
Við getum prófað eitthvað, tekið eftir því sem gerist og ákveðið hvort við viljum halda áfram, breyta eða prófa eitthvað allt annað.
Í því ferli lærum við meira en hvernig við viljum hafa heimilið okkar.
Við lærum að spyrja spurninga. Við lærum að sjá valkosti þar sem eitthvað virtist áður sjálfsagt. Við æfum okkur í að gera, laga, deila, rækta, skapa og hugsa öðruvísi um hvað við þurfum og hver við viljum vera.
Við byggjum upp færni. Og kannski ekki síður sjálfstraustið sem fylgir því að uppgötva að við getum breytt einhverju.
Þetta eru verkfæri sem þurfa ekki að verða eftir heima.
Við getum tekið þau með okkur út í hverfið okkar, vinnustaðinn og samfélagið. Þegar við höfum lært að spyrja hvernig við getum skapað aðstæður fyrir meiri samveru heima getum við spurt sömu spurningar um hverfið okkar. Þegar við höfum endurskoðað hvað „nóg“ þýðir við eldhúsborðið heima getur sú spurning fylgt okkur í innkaupum í Bónus, í vinnunni og lífinu almennt.
Stóru kerfisbreytingarnar verða áfram nauðsynlegar.
En við verðum ekki aðeins áhorfendur að þeim.
Við getum æft okkur í taka þátt í breytingunni og kannski fundið að það sem við gerum skiptir máli, bæði fyrir umhverfið og okkur sjálf.
Við getum notað staðinn sem við þekkjum best til að endurhanna lífið og tilveruna um leið og við búum okkur heimili sem styður þarfir okkar.
Er það ekki spennandi tilhugsun? Að heimilið sé ekki bara staðurinn sem búum á í heiminum eins og hann er — heldur staðurinn þar sem við æfum okkur í að búa til þann heim sem við viljum lifa í?
