← HeimVera

Líkaminn vissi það sem hugurinn reyndi að rökræða burt

Líkaminn vissi það sem hugurinn reyndi að rökræða burt
Anna Lára Steindal

Líkaminn vissi það sem hugurinn reyndi að rökræða burt

Fyrir um það bil tuttugu árum stóð ég við eldavélina heima hjá mér að búa til kvöldmat.

Yngri sonur minn sat í barnastólnum sínum við eldhúsborðið og sá eldri var að leika sér inni í stofu. Þetta var fullkomlega venjulegur eftirmiðdagur í lífi okkar. Ekkert hafði gerst. Engin sýnileg hætta var á ferð.

Samt helltist skyndilega yfir mig fullkomin vissa um að ég væri að deyja.

Þetta var ekki lauslegur grunur eða óljós ónotatilfinning. Ég vissi að ég væri að deyja. Líkaminn virtist hafa tekið yfir og allt innra með mér sagði að eitthvað hræðilegt væri að gerast.

Ég hringdi í mömmu og bað hana að kalla á sjúkrabíl. Ég bað hana líka að senda pabba strax heim til mín. Hugsunin sem greip mig var að ég vildi ekki að synir mínir þyrftu að vera lengi einir í húsinu með mig dána á eldhúsgólfinu.

Nokkrum mínútum síðar kom pabbi.

En enginn sjúkrabíll.

Mamma er hjúkrunarfræðingur og hafði áttað sig mun fyrr en ég á því hvað var að gerast. Þetta var ofsakvíðakast.

Ég fór samt til læknis. Hann tók upplifun mína alvarlega og lét gera alls konar próf og rannsóknir til að ganga úr skugga um að ekkert líkamlegt amaði að. Ég fór í heilaskanna og hjartalínurit og það var vandlega leitað að skýringu.

Niðurstaðan var að ég væri stálhraust.

En ég hafði engu að síður upplifað mig deyjandi.

Á þeim tíma sem liðinn er síðan þetta atvik átti sér stað hafa ofsakvíðaköstin orðið fleiri. Þennan dag fékk ég því það framtíðar-verkefni í hendur að læra að lifa með kvíðaröskun.

Og það hefur oft gengið vel.

Ég veit núna að ofsakvíði er ekki hættulegt. Ég þekki einkennin og veit að þau líða hjá. Í mörg ár fólst aðferð mín fyrst og fremst í því að nota rökhugsunina gegn kvíðanum. Ég reyndi að rökræða mig út úr ofsakvíðanum.

Hjartað slær hratt en það þýðir ekki að ég sé að fá hjartaáfall.

Öndunin hefur breyst og það er erfitt að kyngja, en ég er ekki að kafna.

Mér líður eins og ég sé í lífshættu en ég er ekki í lífshættu.

Þessi aðferð virkaði að vissu marki. Kvíðinn varð viðráðanlegri og hefur ekki haft stórkostleg áhrif á líf mitt. En hann er sannarlega orkufrekur. Ég hef unnið, alið upp börnin mín, ferðast, lært, tekist á við ábyrgð og gert ótal hluti þrátt fyrir kvíðann.

En hann hvarf aldrei alveg.

Smám saman fór ég að velta því fyrir mér hvort ástæðan gæti verið sú að ég væri að gefa hugsuninni, og sérstaklega rökhugsuninni, of mikið vægi.

Ég hafði litið á kvíðann sem einhvers konar misskilning á milli hugar og líkama sem þyrfti að leiðrétta. En hvað ef líkaminn var alls ekki að misskilja neitt? Hvað ef hann var stundum að vara mig við því að það sem hugurinn reyndi að rökræða sig frá væri ekki gott fyrir mig?

Oft var ég sannarlega í aðstæðum sem voru ekki góðar fyrir mig. Álagið var of mikið. Verkefnin of mörg og vinnudagarnir oft langir. Þá beið fjölskylduábyrgðin heima. Síðar greindist mygla í húsnæðinu þar sem ég starfaði. Ég var þreytt en hélt áfram. Líkaminn sendi merki en hugurinn tefldi alltaf fram rökum um hvers vegna ég ætti að halda áfram.

Ég hafði skyldum að gegna.

Starfið mitt var mikilvægt og mér fannst gaman í vinnunni (og finnst enn).

Aðrir treystu á mig.

Þetta myndi reddast.

Ég þyrfti bara að vera skipulagðari, duglegri, agaðri eða sterkari …

En einhvern veginn gerðist það að ég fór að velta því fyrir mér hvort þessi þaulsetni kvíði, þessi lífsseigi förunautur, væri merki um að líkaminn væri bara búinn að fá sig fullsaddan af þessum rökræðum. Að vissu leyti vissi ég að aðstæðurnar sem ég var í voru ekki góðar fyrir mig. Og ég vissi að manneskja getur ekki endalaust rökhugsað sig í gegnum þreytu, áreiti og of miklar kröfur. Samt hélt ég áfram.

Þangað til ég fór að velta því fyrir mér hvort kvíðinn væri kannski boð um að nota athyglina öðruvísi. Ekki í rökræður heldur í vinalegt samtal við líkamann.

Kannski þurfti ég að lesa merki um að taugakerfið væri undir of miklu álagi. Að líkaminn þurfti eitthvað sem hann fékk ekki. Hvíld. Öryggi. Hreyfingu. Næringu. Náttúru. Næði. Tengsl. Fyrirsjáanleika. Eða einfaldlega færri kröfur.

Þarna mætast reynsla mín af kvíða og hugmyndafræði HeimVera.

HeimVera byggir á þeirri hugsun að við séum ekki ótengdir hugar sem ferðast um heiminn í líkama. Við erum líkamlegar verur í stöðugu sambandi við umhverfið. Líkaminn les birtu, hávaða, hitastig, lykt, loftgæði, þrengsli, óreiðu, hraða og möguleika til hvíldar og hreyfingar. Hann bregst við vinnuálagi, samböndum, ábyrgð og þeim kröfum sem við og samfélagið gerum til okkar.

Margt af þessu gerist áður en við getum sett reynsluna í orð eða formað hana í hugsun.

Við getum þess vegna sagt okkur sjálfum að allt sé í lagi á meðan líkaminn æpir að svo sé ekki.

Þetta þýðir ekki að kvíði sé alltaf bein eða áreiðanleg lýsing á veruleikanum. Það þýðir heldur ekki að hægt sé að lækna kvíðaröskun með því einu að breyta umhverfinu. Kvíði er flókið fyrirbæri og fólk getur þurft meðferð, lyf, stuðning og faglega aðstoð. Ég veit að ég þarf þess.

En ég fór að gera tilraunir með að mæta líkamanum ekki alltaf einsog boðflennu sem þurfi að þagga niður í.

Ég fór að velta því fyrir mér hvað hann var að reyna að segja og hlusta eftir svörunum.

Hvernig líður mér í þessu rými?

Hvað gerist í líkamanum þegar ég geng inn á vinnustaðinn minn, heimilið?

Hvar get ég slakað á?

Hvar er ég uppspennt?

Hvaða aðstæður halda taugakerfinu stöðugt á varðbergi?

Hvaða verkefnin lífsins er ég að þræla mér í gegnum með rökhugsuninni einni saman?

Við búum í menningu sem verðlaunar okkur fyrir að horfa fram hjá líkamanum. Við dáumst að fólki sem vinnur þrátt fyrir þreytu, heldur áfram þrátt fyrir sársauka og sinnir öllum skyldum þótt taugakerfið sé komið að þolmörkum.

Við lærum að túlka merki líkamans sem veikleika, óþægindi eða hindrun í vegi fyrir dugnaði, framleiðni, frama.

En líkaminn er ekki aukahlutur sem hugurinn þarf að dragnast með í gegnum lífið.

Hann er hluti af því hvernig við skynjum, hugsum og lærum.

Við skiljum ekki alltaf tungumál líkamans. Hann talar ekki í fullmótuðum setningum. Hann tjáir sig með spennu, þreytu, hjartslætti, óróleika, verkjum, andþyngslum og stundum lönguninni til að hlaupa burt.

Við getum misskilið þessi skilaboð. En við ættum ekki sjálfkrafa að hunsa þau.

HeimVera varð að einhverju leyti til við þa hugljómun að vellíðan verður ekki eingöngu til í huganum – vellíðan er ekki hugsun. Hún verður til í samspili líkama, hugar, umhverfis, tengsla við aðrar manneskjur og þeirra aðstæðna sem við lifum við. Þess vegna er ekki hægt að hugsa sig til eða frá vellíðan.

Umhverfið, heimili okkar eitt og sér getur ekki verndað okkur fyrir öllu álagi lífsins. En það getur verið staður þar sem líkaminn þarf ekki stöðugt að standa sig og víkja fyrir kröfum sem við gerum til sjálfra okkar. Heimili getur verið staður sem býður upp á hvíld, hreyfingu, kunnugleika, fegurð, leik, náttúru og öryggi. Staður þar sem við getum æft okkur í að hlusta á líkamann í stað þess að hafa hann undir í rökræðum.

Ég nota enn rökhugsunina þegar kvíðinn kemur. Hún hjálpar mér að muna að ég er ekki að deyja og að kvíðakastið mun líða hjá.

En nú reyni ég líka að veita líkamanum athygli og spyrja annarra spurningu.

Ekki aðeins: „Hvernig get ég hugsað mig út úr þessu?“

Heldur líka:

„Hvað veit líkaminn minn sem ég hef ekki enn leyft mér að skilja eða samþykkja?“

Skoða allt efni