← HeimVera

Lítil áminning Nýtt sjónarhorn

DAGATÖL HeimVera

Lítil áminning
Nýtt sjónarhorn

Stundum fara dagarnir okkar í að sinna því sem kallar hæst. Við þurfum að sinna ótal verkefnum og standa undir ábyrgð. Það sem okkur þykir vænt um og langar að gefa tíma bíður kannski þar til meira svigrúm gefst.

Dagatöl HeimVera bjóða upp á litlar áminningar um tengsl og undur lífsins mitt í þessum hversdegi. Saga, spurning eða einföld tilraun getur opnað augun fyrir einhverju sem hefur farið fram hjá okkur. Vakið forvitni, kallað fram bros eða minnt okkur á það sem skiptir okkur máli. Kannski breytist þá eitthvað í því hvernig við mætum deginum, fólkinu í kringum okkur eða verkefnunum sem bíða.

13 dagar með HeimVeru

Eitt lag og lítil tilraun á dag. Þrettán dagar til að taka eftir lífinu, spyrja nýrra spurninga og finna eitthvað dýrmætt.

Planta vex úr opinni bók á frímerki í litum HeimVera.

Prufuútgáfa

Velja dagatal →
Blóm séð frá nýju sjónarhorni, neðan frá, í jarðgulum ramma.

Þú sækir dagatal og öll röðin kemur inn í dagatalið þitt í einu. Eitt ping á dag. Engin þörf á nýju appi eða skráningu. Enginn efnisstraumur og ekkert sem þarf að standa skil á. Þú ræður hvað þú tekur með þér.

Getur tæknin beint okkur frá tækninni?

Um tilraun HeimVera +

HeimVera gerir tilraun með að nota eins einfalda tækni og hægt er, sem krefst sem minnst af tíma okkar og athygli. Tækni sem opnar glugga inn í lífið og lætur okkur svo í friði.

Þess vegna dagatal. Eitt ping sem þú bregst við þegar þér hentar. Engin þörf á nýju appi eða notandareikningi, enginn efnisstraumur sem þarf að fylgja. Bara lítil áminning sem getur orðið upphaf að hugsun, samtali eða einhverju skemmtilegu sem þú prófar í hversdeginum.

Fólk er ekki söluvara

Tími okkar, athygli og forvitni eru dýrmæt. HeimVera vill ekki safna upplýsingum um fólk og áhugamál þess í þeim tilgangi að halda því lengur við skjáinn eða selja því eitthvað.

Þú þarft því ekki að stofna aðgang til að sækja dagatal. Þú sendir ekki svör við æfingum til HeimVera og þarft hvorki að skrá þátttöku þína né sýna fram á árangur. Það sem kviknar hjá þér má einfaldlega vera þitt.

Hugmyndin er að HeimVera geti haft tekjur af efni sem fólk kýs að kaupa. Markmiðið er að geta haldið áfram að bæta við efni og næra verkefnið.

Þótt HeimVera safni ekki upplýsingum í markaðsskyni geta gögn orðið til við notkun síðunnar. Hýsingarþjónustan getur til dæmis skráð heimsóknir, og Spotify og dagatalsforrit vinna með upplýsingar samkvæmt eigin persónuverndarreglum. HeimVera getur því ekki lofað því að engar upplýsingar um notkun verði skráðar.

Tæknin er líka siðferðilegt viðfangsefni

Þegar við veljum tækni skiptir máli að spyrja hvers konar lífi hún stuðlar að. Hvað auðveldar hún okkur? Hvað tekur hún frá okkur? Hver nýtur ávinningsins og á hverjum lendir kostnaðurinn?

Þessar spurningar snerta bæði athygli okkar og einkalíf, en einnig störf fólks, sköpun, vald og nýtingu náttúruauðlinda. Þessar spurningar verða ekki síður áleitnar þegar gervigreind á í hlut. Þótt tæknin sé þægileg og opni nýja möguleika þurfum við að huga að afleiðingum þess að nota hana.

Sú ígrundun á heima í HeimVera. Verkefnið snýst meðal annars um að sjá tengslin milli daglegra athafna okkar og þess heims sem þær eiga þátt í að móta.

HeimVera notar gervigreind

Hluti af HeimVera er unninn með aðstoð gervigreindar. Anna Lára Steindal er höfundur verkefnisins en nýtir tæknina við hugmyndavinnu, sköpun og miðlun. Hún ber ábyrgð á því efni sem birtist á vegum HeimVera.

Því getur fylgt þversögn að nota gervigreind til að hvetja fólk til að næra náttúrutengsl, hugsa um sjálfbærni og beina athyglinni frá tækninni. HeimVera gengst við þessu og tekur alvarlega umræðuna um áhrif gervigreindar á náttúru og samfélög. Þar koma meðal annars við sögu orku- og auðlindanotkun, vinnuaðstæður, höfundaréttur og samþjöppun valds.

Góður tilgangur réttlætir ekki sjálfkrafa allar leiðir að honum. Slík ígrundun verður líka að geta leitt til þess að við skiptum um skoðun. Tæknin getur hjálpað okkur að orða spurningar og komið auga á nýja möguleika. En á endanum er það á okkar ábyrgð að meta hvað við gerum við þá möguleika og hvort við getum látið þá þjóna samfélagi lífsins.

Skoða allt efni