Hvað býður umhverfið þér að gera?
FRÁ TENGSLUM TIL TILRAUNAR

Hvað býður umhverfið
þér að gera?
Líttu í kringum þig þar sem þú ert.
Er eitthvað sem býður þér að njóta? Eiga samskipti? Hafa gaman? Hreyfa þig?
Veldu eitthvað eitt sem þig langar að gefa meira rými í deginum. Hugsaðu síðan um hvort lítil breyting í umhverfinu gæti gert það auðveldara.
Bók á náttborðinu. Gönguskór við dyrnar. Æfingafötin tilbúin þar sem þú sérð þau.
Laust sæti við borðið.
Þú getur prófað breytinguna og tekið eftir því hvort það verður auðveldara að gera þessa athöfn part af deginum. Kannski hjálpar hún. Kannski leiðir hún þig að annarri spurningu.
Taktu hugmyndina með þér heim ↗