HönnunHönnun getur nært lífið sem við erum hluti af.
Hvernig getum við nært það sem nærir okkur?
Hönnun gegnir mikilvægu hlutverki í því að búa lífi okkar umfjörð. Hönnun hefur mikil áhrif á það hvort umhverfið uppfylli þarfir okkar, bjóði upp á hvíld, öryggi og samveru; hvort ólíkir líkamar komast að og geta tekið þátt í samfélagi.
Endurnærandi hönnun spyr líka hvernig við getum hlúð að lífinu sem við erum hluti af og reiðum okkur á. Geta heimili, hverfi og innviðir verndað vatn, jarðveg og lífríki um leið og þau styðja og næra okkur?
