← HeimVera

Lífsækin hönnun

Lífsækin hönnun

Lífsækin hönnun

Lífsækin hönnun felur í sér hugmyndina um að manneskjan sé í djúpum tengslum við hinn lifandi heim. Tengslum sem mótuðust í þróun samtvinnaðrar tilveru gegnum árþúsundin. Lengst af sögu mannsins lifði hann í beinu sambandi við náttúru og landslag, dagsbirtu, veður, plöntur, vatn, dýr, árstíðir og náttúruleg efni. Líkamar okkar þróuðust inni í þessu umhverfi og takti lífsins, ekki utan hans.

Að færa náttúruna inn í nærumhverfi okkar snýst því um meira en nokkrar stofuplöntur. Það getur falist í breytilegri dagsbirtu, fersku lofti, útsýni, lífrænum formum, náttúrulegri áferð, vatni, árstíðabundnum hlutum, matjurtum og þeirri daglegu athöfn að annast eitthvað sem lifir, vex og dafnar.

HeimVera spyr hvað gerist þegar náttúran er ekki bara útsýnið út um gluggann heldur dýrmætt samband í nærumhverfinu. Kannski getur heimilið minnt líkamann á að hann er hluti af stærra lifandi kerfi — og að vellíðan sé ekki bara einstaklingsbundið verkefni heldur eitthvað sem umhverfið í kringum okkur styður við – eða ekki.

Skoða allt efni