Samfélag lífsins
Hugtakið samfélag lífsins býður okkur að endurskoða stöðu okkar í heiminum. Við tilheyrum lífi sem hefur þróast í ótal tengslum og er sífellt að verða til. Loftið sem við öndum að okkur, vatnið sem við drekkum og næringin sem verður hluti af líkama okkar minna á að þessi tengsl liggja líka í gegnum okkur. Náttúran er forsenda tilveru okkar og hluti af því sem við erum.
Þessi tengsl eru allt í kringum okkur í hversdeginum þó við tökum kannski ekki eftir því. Tré í hverfinu veitir öðrum lífverum skjól og breytir umhverfi þeirra sem eiga leið hjá. Heimili okkar, vinnustaðir og samfélög eru samofin þessum tengslum. Hvernig við skipuleggjum, hvað við teljum verðmætt og hvaða venjur við temjum okkur hefur áhrif á lífið sjálft
Í HeimVera er samfélag lífsins hugmynd til að hugsa með og finna sig í. Hún getur vakið undrun yfir því hversu mörgu við tilheyrum og beint athyglinni að því sem við tökum annars sem sjálfsögðum hlut. Hvað gæti breyst í gildismati okkar, hönnun og daglegum athöfnum ef við værum meira meðvituð um þetta? Hvernig getum við skapað okkur gott líf um leið og við hlúum að lífinu sem gerir það mögulegt?
