Ímyndun
Ímyndunaraflið er ofurkraftur — og grundvallarforsenda breytinga. Ef við getum ekki ímyndað okkur nýja möguleika munum við halda áfram að endurnýta hugmyndir sem við þekkjum fyrir. Hanna sömu rýmin, hafa sömu venjurnar og sömu hugmyndirnar um hvernig lífið á að vera.
Heimilið er góður staður til að æfa ímyndunaraflið vegna þess að það er öruggur staður, nálægt okkur og alltaf hægt að breyta aftur ef eitthvað virkar ekki. Við getum fært hluti til, málað í nýjum lit, búið til horn fyrir athöfn sem við viljum temja okkur, fyllt heimilið af lífi með plöntum og matarboðum eða notað hlut á allt annan hátt en honum var ætlað — og síðan tekið eftir því hvort eitthvað breytist.
Í HeimVera er ímyndunaraflið brú sem tengir hönnun, hugmyndir og lífið sjálft við stærri spurningu: getur það að æfa okkur í að ímynda okkur öðruvísi umhverfi, heimili eða rými líka styrkt hæfni okkar til að ímynda okkur aðrar leiðir til að lifa?
