← HeimVera

Nægjusemi

Nægjusemi

Nægjusemi

Nægjusemi hefst á spurningu sem neyslumenningin hvetur okkur sjaldan til að spyrja: Hvenær er nóg komið? Hún snýst ekki um skort eða sjálfsafneitun heldur um að greina hvað styður raunverulega við gott líf — og hvenær meira hættir að vera gildisaukandi.

Á heimilinu getur nægjusemi falist í að nota það sem við eigum, velja hluti af alúð, gera við það sem bilar og leyfa rýminu að anda. Nægjusemi getur líka falist í að uppgötva annars konar allsnægtir: nægan tíma, hvíld, fegurð, sköpun, samveru og svigrúm til að lifa án þess að neysla taki yfir.

HeimVera lítur á nægjusemi sem skapandi möguleika fremur en takmörkun. Hvað ef það að svara spurningunni „hvað er nóg?“ hjálpar við að skapa okkur tilveru sem krefst minna af sjálfum okkur og heiminum og hlúir betur að lífinu?

Skoða allt efni